Samanlögð staða
 
Það verður að stöðva manninn
Aftur sigrar Logi tímabilið og að þessu sinni þarf hann ekki að deila toppsætinu með neinum. Samanlagt hefur hann unnið 26.500 kr. á fyrsta tímabili vetrarins þrátt fyrir breyttar reglur til að dreifa peningaverðlaunum meira. En ég er samt ánægður með dreifinguna úr lokapottinum, það þarf bara að stöðva manninn svo að hann hafi okkur ekki að algjörum fíflum. Mér finnst þriggjamótafyrirkomulagið koma vel út og gera þetta jafnt og spennandi eins og sést á stigatöflunni. Eins og kunnugt er verður næsta mót og það fyrsta í nýju tímabili haldið á Rauða ljóninu. Það verður í fyrra fallinu eða kl. 19:30 og mælst er til að þeir sem sjá sér fært um að koma fyrr, geri það og við snæðum saman. Stefnt er að 30 manna móti en deildin okkar verður sjálfstæð innan mótsins.