Hvað gerist...
 
Holuspilin (2 grúfuspil á mann)
Ef fyrsta eða annað holuspil snýst við er gefið aftur. Gjafarinn tekur saman spilin, stokkar og gefur aftur. Ef eitthvað annað holuspil snýst við vegna mistaka gjafara heldur gjöfin áfram. Eftir að gjöf líkur skiptir gjafari spilinu sem snerist við út fyrir efsta spilið í bunkanum og spilið sem snerist við verður brennsluspil. Ef meira en eitt holuspil snýst við er gefið aftur.
Gjafari gleymir að brenna
Ef gjafari gleymir af brenna spil á „flop-inu“, „turn-inu“ eða á „river-num“ er spilið sýnt öllum spilurum, tekið úr umferð og telst nú vera brennsluspil. Nýtt spil kemur í stað þess á borðið.
The flop (3 fyrstu borðspilin)
Ef „flop-ið“ er gefið áður en allir hafa veðjað eða spilin eru of mörg eru þau stokkuð aftur við afganginn af stokknum. Brennsluspilið er áfram á borðinu. Gjafarinn gefur nýtt „flop“ án þess að brenna.
The turn og the river (4. og 5. borðspil)
Ef gjafari gefur “turn-ið” (4. borðspil) áður en allir hafa veðjað er spilið tekið frá með framhliðina upp og telst ekki með í þeirri umferð, þrátt fyrir að spilarar hafi veðjað/pakkað eftir að það kom í borðið en þau veðmál eru afturkölluð.  Veðmálum er lokið. Gjafari brennir og gefur nýtt spil (sem hefði verið “river-ið”). Eftir að allir hafa veðjað í þessaru umferð stokkar gjafari stokkinn aftur með spilinu sem tekið var frá en ekki brennsluspilum (né spilum sem hafa verið tekin úr umferð vegna annarra mistaka ef einhver eru). Gjafari gefur síðasta spilið án þess að brenna. Ef fimmta spilið er gefið of snemma er endurstokkað með spilinu og gefið aftur.
Með þessu er tryggt að “the river” komi í borð og með því að brenna ekki í lokin eru meiri líkur á að “the turn” komi aftur.