Mikið á sig lagt
 
Eftir síðasta deildarmót í skúrnum hjá Gísla sá Jón Valur að hann þyrfti að “kick it up a notch” og taka skúrinn sinn svolítið í gegn. Hann er núna staddur á alþjóðlegri spilasýningu (Gaming Expo 2010) í Seattle þar sem hann er að kynna sér hvað hann þarf að hafa í huga við endurbætur á sínum skúr. Ég nýtti ferðina og fékk hann til að versla nokkrar vörur fyrir lokasprettinn á tímabilinu. Þar sem von er á Andra Blöndal í fyrsta skipti, en hann hefur verið andlega fjarverandi í upphafi tímbilsins, þori ég ekki öðru en að mæta með óupptekna stokka.
Gaming Expo 2010
Wednesday, May 5, 2010