Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Keppnin um stjörnu nr. 2 hefst á morgun

Skrifað af þann 6. Dec 2012 in Blog | 3 athugasemdir

Mótaröð 2 byrjar á morgun og þá hefst keppnin að 2. stjörnu ársins og nýjum lokapotti. Menn eru orðnir hungraðir í spil þar sem við tókum eina auka viku á milli móta að ósk mín þar sem ég ætlaði að gera vel við menn og bjóða uppá pizzu & bjór fyrir spil sem ætti að gera upp fyrir auka vikufríið 😉
Það lítur allt út fyrir að við verðum á 2 borðum eins og síðast enda margir sem ætla sér stóra hluti og verður fróðlegt að sjá hvernig þetta fer allt fram. Munið bara að það er mæting kl. 19:00 í pizzu & bjór 😉

Lesa meira

Hvert er uppáhalds pókerlagið þitt?

Skrifað af þann 20. Nov 2012 in Blog | 5 athugasemdir

Ég verð að segja að “Back down” með meistara Johnny Cash kemur mér alltaf í póker gírinn. Þetta lag er líka ákveðin gröf sem maður kemur sér oft í þegar það er bara ekki hægt að gefst upp með góða hönd eða annað sem heldur manni inní spilinu.
Hvert er ykkar uppáhalds pókerlag?

Lesa meira

Undirbúningur fyrir næsta mót hafinn

Skrifað af þann 13. Nov 2012 in Blog | 7 athugasemdir

Það er þegar byrjað að undirbúa næsta næsta mót. Ég verð nú seint candídat fyrir gestgjafa ársins þar sem ég er yfirleitt upptekinn af því að stilla upp fyrir spili og þegar ég sest gleymi ég alveg að bjóða uppá eitthvað þó ég hafi ætlað það 😉 En það verður mæting snemma á næsta mót og elduð pizzu fyrir alla sem mæta snemma.
Í gær fór ég svo í síðbúna ferð í Vínbúða til nágrannans (sem er ekki nágranni 😉 þar sem að búin hans er opin langt fram eftir kvöldi. Við áttum með okkur góð viðskipti og fór ég út með veigar fyrir mótið sem er eftir rúmar 3 vikur.

Lesa meira

Hugsað um klúbbinn

Skrifað af þann 6. Nov 2012 in Blog | 2 athugasemdir

Í póstkassanum hjá Formanninum í dag var lítill pakki frá meðlimi sem klárlega hugsar um klúbbinn sinn. Á síðasta móti kláraðist ákveðin munaðarvara og í pakkanum var ný sending af þessum nauðsynlega fylgihlut í tösku félagsins.
Það er gaman að sjá menn hugsa svona vel um klúbbinn og ekki hægt að segja annað en að hér sé á ferð mikill meistari sem fær þakkir fyrir fallega hugsun =)

Lesa meira

Þúsarinn

Skrifað af þann 6. Nov 2012 in Blog | Engar athugasemdir

Ég rak augun í það að pókerforritið sagði að ég hefði fengið þúsarann eftir síðasta mót þar sem enginn náði honum af mér. En við höfum alltaf látið hann ganga áfram (og það er tvöfaldur þúsari á mér næst) en það er spurning hvort menn vilja breyta því þannig að sá sem er með bounty á sér hafi möguleikann á að vinna það með að lifa af?

Lesa meira
  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…