Kennaramótið 5. október
Það styttist í kvöld #2 í fyrstu mótaröðinni. Timbrið leiðir stigakeppnina eftir fyrsta kvöldið en allt er opin í mótinu og væntanlega verður mætingin góð því margir eru stigalausir eftir fyrsta kvöld. Tvö kvöld eftir fyrir fyrstu ★ ársins og jafnframt lokapottinn í fyrstu mótaröðinni.
Mótið lendir á kennaradeginum og spurning hver ætlar að taka menn í kennslu og hver ætlar að bjóða heim?
Skráningin er opin og látið vita ef þið getið boðið heim.
Lesa meira1000+ comment
Það fór lítið fyrir því þegar að 1000 athugasemdin á síðunni var sett inn. Síðan er búin að vera í loftinu síðan í júlí 2010 sem gerir um 800 daga þannig að athugasemdir eru fleiri en ein á dag sem við verðum að telja nokkuð gott og sjáum hvernær við náum athugasemd nr. 2000.
Iðnaðarmaðurinn átti heiðurinn af #1000 og var hún stutt og góð.
Spenntur
Þúsundasta athugasemdin á heimasíðunni (Iðnaðarmaðurinn september 2012)
Alltaf gaman þegar menn taka þátt í umræðunni hér og hvet ég meðlimi til þess að segja hvað sem þeim dettur í hug…aldrei að vita nema menn fái eitthvað fyrir sinn snúð á endanum 😉
Lesa meira1000 góðar póker aðferðir
Bók mánaðarins hefur ekki verið birt lengi og nú er það 1000 best poker strategies sem er samansafn af góðum ábendingum um póker. Menn geta gluggan í þá kafla sem menn hafa áhuga. 2. kafli fjallar um No-limit texas holdem og 9 kafli um að lesa leikmenn.
Síðan er áhugaverður kafli nr. 10 um heimaleiki þar sem við höfum nú þegar útfært margt en góður punktur nr. 849
If you want to take your poker club one step further, you can offer satellites for major tournaments. Elect a president and the most important officer of your club, the treasurer.
Sem gæti verið vert að koma upp í reglu að einn sjái um fjármálin í hverju móti þar sem það vantaði uppá seðlana þegar við gerðum upp Lommamótið.
Breyting á móti
Sælir félagar, ég ætla að óska eftir að fá að gera breytingu á fyrsta kvöldi í mótaröð 2 sem er fyrirhugað 30. nóvember. Ef enginn gerir athugasemdir ætla ég að færa það aftur um eina helgi á 7. desember. Þar sem ég er með afmæli um svipað leiti ætlaði ég að gera aðeins meira úr mótinu með að bjóða heim í mat fyrir mót. Allir sáttir?
Lesa meiraTímabilið er hafið
Hörðustu meðlimir mættu í sund og tóku svo kvöldmáltíð fyrir spil. Það var afskaplega vel til fundið að hittast áður og ná smá spjalli og væri gaman að reyna að koma því í meiri hefð.
En það voru einungis 7 við borðið á fyrsta móti…allir í bolun nema Timbrið sem mætti með rollon og nýja sokka eftir strangan dag í nýrri vinnu.
Pusi byrjaði vel og var að hitta á allt og náði strax yfirhöndinni.
Lesa meira
❤️😘