Hugsað um klúbbinn
Í póstkassanum hjá Formanninum í dag var lítill pakki frá meðlimi sem klárlega hugsar um klúbbinn sinn. Á síðasta móti kláraðist ákveðin munaðarvara og í pakkanum var ný sending af þessum nauðsynlega fylgihlut í tösku félagsins.
Það er gaman að sjá menn hugsa svona vel um klúbbinn og ekki hægt að segja annað en að hér sé á ferð mikill meistari sem fær þakkir fyrir fallega hugsun =)
Þúsarinn
Ég rak augun í það að pókerforritið sagði að ég hefði fengið þúsarann eftir síðasta mót þar sem enginn náði honum af mér. En við höfum alltaf látið hann ganga áfram (og það er tvöfaldur þúsari á mér næst) en það er spurning hvort menn vilja breyta því þannig að sá sem er með bounty á sér hafi möguleikann á að vinna það með að lifa af?
Lesa meiraKarma?
Síðasta mótið í fyrstu mótaröðinni (nefnt Dauðamótið) var tekið hjá “Lucky Luke” og ég held að það sé alveg sannað að það ákveðin “heppni” sem fylgir honum/mér þó svo ég geti vissulega líka verið “óheppinn”…
Lesa meiraBjóruppgjör síðasta tímabils
Það eiga nokkrir eftir að gera upp bjórinn frá síðasta tímabili. SÁÁ mætir þannig að það er upplagt tækifæri að ganga frá því.
Uppgjörið er hluti af bókhaldinu og hægt að sjá það í flipanum “Innkoma 2012” neðarlega (fyrir ofan commentin) á bókhaldssíðunni.
Dauðapóker á föstudaginn
Þá er komið að fyrstu stjörninni, fyrstu úthlutun úr lokapottin og enn einu góðu kvöldi þar sem félagarnir setjast yfir pókerborðið. Þetta mót er á Degi hinna dauðu og því vel við hæfi að kalla þetta Dauðamótið en það munu einhverjir detta dauðir frá lokapottinum ef þeir ná ekki að rúlla upp mótinu.
Lesa meira7 góð ráð fyrir hið fullkomna pókerfeis
Hér er skemmtileg grein um að setja upp gott pókerfeis sem einhverjir gætu lært eitthvað af…ég væri til í að sjá menn senda inn myndir ef þeir fara að æfa sig fyrir framan spegilinn eins og mælt er með í 7. punkti 😉
Lesa meira
Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…