Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Heppni eða ekki?

Birt af þann 7. Oct 2012 Í Blog, Myndir | 9 Ummæli

Mikill spenningur var í loftinu fyrir 2. kvöldið í fyrstu mótinu þegar menn fór að streyma í Casino Massinn einn af öðrum og Timbrið mætti með nýja rétti (& gamla góða) úr vinnunni sem var sérstaklega skemmtilegt og lífgaði uppá stemmninguna…þó svo að jalapenjo hafa orsakað full mikinn viðrekstur undir lok spils hjá sumum 😉

Lesa meira

Kennaramótið 5. október

Birt af þann 30. Sep 2012 Í Blog | 16 Ummæli

Það styttist í kvöld #2 í fyrstu mótaröðinni. Timbrið leiðir stigakeppnina eftir fyrsta kvöldið en allt er opin í mótinu og væntanlega verður mætingin góð því margir eru stigalausir eftir fyrsta kvöld. Tvö kvöld eftir fyrir fyrstu ★ ársins og jafnframt lokapottinn í fyrstu mótaröðinni.

Mótið lendir á kennaradeginum og spurning hver ætlar að taka menn í kennslu og hver ætlar að bjóða heim?

Skráningin er opin og látið vita ef þið getið boðið heim.

Lesa meira

1000+ comment

Birt af þann 30. Sep 2012 Í Blog | Engin ummæli

Það fór lítið fyrir því þegar að 1000 athugasemdin á síðunni var sett inn. Síðan er búin að vera í loftinu síðan í júlí 2010 sem gerir um 800 daga þannig að athugasemdir eru fleiri en ein á dag sem við verðum að telja nokkuð gott og sjáum hvernær við náum athugasemd nr. 2000.

Iðnaðarmaðurinn átti heiðurinn af #1000 og var hún stutt og góð.

Spenntur

Þúsundasta athugasemdin á heimasíðunni (Iðnaðarmaðurinn september 2012)

Alltaf gaman þegar menn taka þátt í umræðunni hér og hvet ég meðlimi til þess að segja hvað sem þeim dettur í hug…aldrei að vita nema menn fái eitthvað fyrir sinn snúð á endanum 😉

Lesa meira

Breyting á móti

Birt af þann 22. Sep 2012 Í Blog | 4 Ummæli

Sælir félagar, ég ætla að óska eftir að fá að gera breytingu á fyrsta kvöldi í mótaröð 2 sem er fyrirhugað 30. nóvember. Ef enginn gerir athugasemdir ætla ég að færa það aftur um eina helgi á 7. desember. Þar sem ég er með afmæli um svipað leiti ætlaði ég að gera aðeins meira úr mótinu með að bjóða heim í mat fyrir mót. Allir sáttir?

Lesa meira

Smá upprifjun af hverju við erum í þessu…

Birt af þann 21. Sep 2012 Í Blog | 3 Ummæli

Fleiri video

Lesa meira

Tímabilið er hafið

Birt af þann 8. Sep 2012 Í Blog, Myndir | Engin ummæli

Hörðustu meðlimir mættu í sund og tóku svo kvöldmáltíð fyrir spil. Það var afskaplega vel til fundið að hittast áður og ná smá spjalli og væri gaman að reyna að koma því í meiri hefð.

En það voru einungis 7 við borðið á fyrsta móti…allir í bolun nema Timbrið sem mætti með rollon og nýja sokka eftir strangan dag í nýrri vinnu.

Pusi byrjaði vel og var að hitta á allt og náði strax yfirhöndinni.

Lesa meira
  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…