Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Hugtök

Spil í borð
  • Floppið – fyrstu þrjú (samfélags/sameiginlegu) spilin sem koma í borð (en. flop)
  • Fléttan – fjórða spil í borð (en. turn)
  • Fljótið – fimmta (síðasta) spil í borð (en. river)
Veðmál
  • Litli (blindur) – skylduveðmál á fyrsta spilara á eftir gjafara til að koma veðmálum af stað (en. small blind)
  • Stóri (blindur) – skylduveðmál, tvöfaldur litli blindur (en big blind)
  • Regnbogi – Veðmál uppá 1.600 (einn hvítur, einn rauður, einn grænn) (sjá spilapeninga á mótafyrirkomulagi) (einnig kallaður litli regnbogi)
  • Stór regnbogi – Veðmál uppá 6.600 (regnbogi + einn svartur)
Annað
  • Búbblan – sá sem tekur síðasta sætið fyrir verðlaunastæti (oft kallað bubble sætið, en búbblan hér á við fyrstu sætin sem gefa verðlaun (á ensku er talað um (money) bubble sem misstór eftir fjölda spilara og uppsetningu móta en við notum þetta um þann sem rétt missir af því að komast inní verðlaun). Gæti einnig verið kallaður “skít óheppinn”
  • Gjafari / gjafarahnappur – sá sem er að gefa spil (en. dealer)
  • Þúsarinn – verðlaun fyrir að slá út þann sem sem síðast vann (eða næsti þar á eftir ef að síðasti sigurvegari er ekki á staðnum) (en. bounty)
  • Bjórstig – stig fyrir að sigra með sjöu-tvist, flestir sigrar á tímabili gefa Bjórmeistaratitil

Ný hugtök (tímabilið XV)

  • Sorrýtékk (sögn) – Að skoða spilin afsökunarbeiðandi og vita ekki hvað maður ætlar að segja, oftast áður en maður spilar hörkuhönd, frá Bjólfur XV.2 – Mýsnar leika meðan aðrir sofa
  • Splassréttur (nafnorð)- Sérregla sem leyfir að dreifa spilum á sinn einstaka hátt, án mótmæla, frá Bjólfur XV.2 – Mýsnar leika meðan aðrir sofa
  • Bangsahommi (lýsingarorð) – Sá sem getur haldið utan um vinina, gefið spil og brotið fólk niður með topppari á river, frá Bjólfur VX.7 – Drottningar og svartir
  • Fókusfold (sögn) – Að henda höndum viljandi til að geta betur einbeitt sér að því að gefa, frá Bjólfur XV.2 – Mýsnar leika meðan aðrir sofa
  • (Að) bjólfast (sagnorð) – Að komast í rétt gír fyrir kvöldið – yfirleitt með bjór, heita pottinn og grín á kostnað einhvers sem floppaði illa.
  • (Að) njálga (sagnorð, óformlegt) – Að gera aðra illa með skrítinni, smitandi orku; oft notað þegar menn „meika“ eitthvað óvænt sem enginn trúði.
    Dæmi: „Hann var búinn að vera rólegur en svo bara njálgaði hann alla í pottinn.“
  • Tvípottur (nafnorð) – Þegar menn enda samtímis í bjórpotti og spilapotti.
  • Blöffsorg (nafnorð) – Tómarúm eftir að blöff klikkar.
    Dæmi: „Það sást á honum að hann var í blöffsorg. Sat bara og starði á gólfið eftir að hafa verið séður.“
  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…