Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Eftir flop

Fyrir pókerspilara er nauðsynlegt að hafa einhverja hugmynd um hvar hann stendur eftir floppið og hversu miklar líkur eru á að fá þá hönd sem hann sækist eftir á móts við þá upphæð hann þarf að setja út til að vinna pottinn. Tvennt þarf að hafa í huga.

  1. Vinningslíkur
  2. Potthlutfall
Aðeins ætti að kalla ef vinningslíkur eru hærri en potthlutfall!

Hafa skal í huga að þó við köllum þetta vinningslíkur er ekki öruggt að þú vinnir þó svo að þú hittir á spilið sem þig vantar.


Til er nokkuð einföld leið til að koma sér í námunda við raunlíkur á að ná þeirri hönd sem vonast er til og mögulega vinna pottinn.

Setjum upp einfalt dæmi þar sem tveir spilarar eru eftir í pottinum, þú og andstæðingur þinn:

Holuspilin þín eru:

Q 7

Floppið er:

K 2 Á

Andstæðingurinn veðjar 200 kr. í 400 kr. pott (=600 kr.). Hvað gerir þú?

Vinningslíkur

Þú byrjar á að telja þau spil sem eftir eru í bunkanum sem þú þarf að fá til að ná höndinni. Í þessu tilfelli er sóst eftir spaðasort. Þú er með tvo spaða á hendi og tveir eru í borði = 4 spaðar, sem gera níu spaða eftir í bunkanum. Þú átt þá 9 bjargvætti (outs).

Næst er að tvöfalda bjargvætti og bæta einum við útkomuna.

Tvöfalda bjargvætti: 2 x 9 = 18 

Bæta einum við: 18 + 1 = 19

19% líkur á að þú hittir á spaðasort

Það eru 19% líkur og að þú fáir spaðan sem þig vantar í næsta spili (the turn). Þetta köllum við vinningslíkur. Sami útreikningur á við eftir 4. spil (the turn), nánar útskýrt neðar.

Sjá töflu yfir raunlíkur

Þetta var ekki svo flókið en til að meta veðmálið þarftu líka að finna potthlutfallið.

Potthlutfall

Til að finna potthlutfall berðu einfaldlega saman þá upphæð sem þú þarft að leggja undir, við þá upphæð sem þú getur unnið. Mikilvægt er að muna eftir að leggja næsta veðmál þitt við vinningsupphæðina. Potturinn stendur í 600 kr. og þú þarft að leggja 200 kr. undir til að kalla (þá verður potturinn kominn í 800 kr.) sem gefur þér 25% potthlutfall.

  • Vinningslíkur: 19%
  • Pottlhlutfall: 25%

Þú ættir aðeins að kalla ef vinningslíkur eru hærri en potthlutfall

Í okkar dæmi ættir þú ekki leggja meira en 19% undir af því sem þú getur unnið, m.ö.o. potthlutfallið (25%) ætti ekki að vera hærri en 19% (vinningslíkurnar). Í þessu dæmi er potthlutfallið hærra en vinningslíkurnar og því væri réttast að pakka. Ef þú fylgir þessari reglu ættir þú að koma út í plús til lengri tíma litið.

Hvers vegna reikna aðeins líkur á næsta spili þegar það eiga tvö eftir að koma?

Þetta er réttmæt spurning þar sem líkurnar á spaðasort í okkar dæmi eru vissulega 19% á hvort spil sem á eftir að koma sem gera 38% líkur (fáir þú að sjá bæði spilin). En þar sem við erum að bera saman vinningslíkur við potthlutfall verðum við að skoða hvort spil fyrir sig, m.ö.o. við erum að meta hversu líklegt er að hitta á hönd miðað við það veðmál sem við stöndum frammi fyrir hverju sinni. Við getum ekki vitað hvað gerist í næstu veðlotu og þurfum því að endurskoða málið þá.

Ef við höldum áfram með dæmið, gefum okkur að þú hafir kallað þrátt fyrir allt og fáum 4. borðspilið í borð.

K 2 Á    5

Andstæðingurinn leggur aftur 200 kr. undir og er nú potturinn kominn í 1.000 kr. Þú þarft að leggja 200 kr. undir til að kalla og eiga möguleika á að vinna 1.200 kr.

Vinningslíkur: 19%
Potthlutfall: 17%

 

Nú eru vinningslíkur orðnar hærri en potthlutfallið og því réttlætanlegt að kalla.

Tafla yfir raunlíkur

Fara efst á síðu

Skilja eftir ummæli

Your email address will not be published. Required fields are marked *

  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…