Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Nýjustu fréttir

Árshátíð – Bústaður

Birt af þann 7. Feb 2011 Í Bústaður, Fréttir | 6 Ummæli

Sælir, varðandi bústaðaferðina þá mun ég athuga með fyrstu helgina í júní þegar opnað verður fyrir úthlutun sumartímans. Mér skilst að lífeyrisþegar hafi forgang !!! en sjáum hvað setur … það eru víst einhverjar úthlutunarreglur! En annað sem mig grunar er að það er bara hægt að leigja bústað í viku í senn yfir sumartímann svo ef einhver annar veit um bústað sem hægt er að leigja í einn til tvo sólarhringa þá láta vita.

b.kv.robocop

Lesa meira

Cash game

Birt af þann 5. Feb 2011 Í Fréttir | 2 Ummæli

Nú líða 5 vikur milla móta og þykir mönnum það aðeins of mikið, sérstaklega þegar merkinging á chippana er komin. Mikkalingurinn hefur hug á því að bjóða mönnum í skúrinn hjá sér miðvikudaginn kl. 20 til að líma á chippana og taka smá cash game á eftir. Ef meiri stemning er fyrir stuttu móti, er það líka hægt.

Hverjir eru með? Skrá sig hér

Hér til hægri er hægt að sjá nýjustu svörin, fylgst með umræðunni og taka þátt. Einnig er komið yfirlit yfir mótin undir “Næstu mót” þar sem meðlimir geta skráð sig í mótin. M3 stendur fyrir mótaröð 3. Efst er staða lokapotts.

Lesa meira

Merkingin komin

Birt af þann 1. Feb 2011 Í Fréttir | 15 Ummæli

"Nýju" chipparnirLoksins eru límmiðarnir komnir og þetta lítur bara nokkuð vel út. Það er auðveldara og fljótlegra að setja þá á en ég bjóst við en mun samt taka smá tíma. Það er ánægjulegt að geta spilað með sérmerkta chippa á eins árs afmæli Bjólfs 🙂

Lesa meira

Bolur 2011

Birt af þann 30. Jan 2011 Í Fréttir | 10 Ummæli

Pöntun verður lögð inn á næstunni…þegar búið er að finna út úr hver er hagkvæmasta leiðin til að koma þeim til landsins, þannig að það gæti verið bið eftir þeim.

Eftirfarandi er pöntunin:

Mun uppfæra með commentum hér til að láta vita hver staðan er.

Lesa meira

Mótaröð 2 lokið

Birt af þann 30. Jan 2011 Í Mót | 10 Ummæli

Nú er annarri mótaröð af þremur á þessu pókerári lokið og var það hinn heiðarlegi Bósi sem vann hana. Massinn hafnaði í öðru sæti og Iðnaðarmaðurinn náði því þriðja. Það voru þrír jafnir að stigum í þriðja sæti og var sú regla því sett á, að þátttaka í færri mótum skilar meðlimur ofar í sæti. Þetta er í vissri mótsögn við markmið klúbbsins um að sem “flestir meðlimir hittist einu sinni í mánuði” þar sem mönnum er hampað fyrir að mæta sjaldnar í tilvikum sem þessum en það gefur auga leið það er ekki vænleg hernaðaráætlun að stíla inn á þetta og því ekki óeðlileg regla.

Iðnaðarmaðurinn vann þriðja og síðasta mótið í mótaröðinni og því verður bounty á hann næst þó svo að það verði í nýrri mótaröð. Það sem stendur helst upp úr þegar ég fer að hugsa um mótið er hvað ég drakk mikið af “góðu” kaffi og skolaði því niður með köldu öli, ég man þó að Iðnaðarmaðurinn vann á K10

Ég minni þá sem eiga eftir að láta Loga fá upplýsingar um bolinn að gera það sem fyrst.

Lesa meira
  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…