Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Nýjustu fréttir

Mottu-póker á föstudaginn

Birt af þann 17. Mar 2014 Í Mót | 1 ummæli

Annað kvöldið í síðustu mótaröðinni í ár er á föstudaginn hjá Lucky Luke.

Skráningin er hafin og þegar hafa 2 mottur skráð sig til leiks…verður gaman að sjá hvort það verða fleiri sem mæta með mottur…

Lesa meira

Afmælisdagur Bjólfs…og Lommanns

Birt af þann 4. Mar 2014 Í Blog | Engin ummæli

Það er 4. ára afmæli klúbbsins í dag sem á einmitt sama afmælisdag og Stofnandinn…skemmtileg tilviljun 😉

Spurning hvort einhverjir mæti með mottu 21. mars í tilefni Mottumars?

Þar sem við verðum heima hjá mér stefnum við á myndatöku, stilli upp vélinni…höfum ekki náð neinni góðri hópmynd af okkur…smá upphitun fyrir hópmyndatöku í bústaðnum eftir rúma 2 mánuði.

Lesa meira

Gælunöfn

Birt af þann 2. Mar 2014 Í Blog | 1 ummæli

Góð tillaga koma frá Mikkalingnum að kalla mig Lukku Láka sem hefur verið samþykkt. Meðlimasíðan hefur verið uppfærð sem og uppfært símanúmer komið hjá Massanum þannig að nú er hægt að fletta því upp þar…og hringja í hann beint úr snjallsímum með að smella á númerin.

Ef þið hafið einhverjar óskir um gælunöfn (eða aðrar breytingar sem þarf að gera á upplýsingum um ykkur) þá látiði vita.

Lesa meira

Lucky Luke strikes again

Birt af þann 1. Mar 2014 Í Mót | 7 Ummæli

Það er langt síðan við höfum spilað hjá Massanaum og sumir sem voru að stíga sín fyrstu skref um höllina sem er réttnefni fyrir einstaklega fallegar vistarverur Massans.

Lesa meira

Casa de Mass á föstudaginn

Birt af þann 26. Feb 2014 Í Mót | 7 Ummæli

Þriðja og síðasta mótaröðinn í tímabilinu hefst. Það er búið að opna aftur Casa de Mass eftir breytingar og verður gaman að fara aftur á “æskuslóðir” klúbbsins þó við höfum við uppfærðir í enn betra rými hjá gestgjafanum.
Keppnin er enn æsispennandi og verður fróðlegt að sjá hvort að einhverjir fara að skáka Bjólfsmeisturunum tvemur sem eru búnir að vera að skiptast á forystunni…enda einu mennirnir með fulla mætingu á tímabilinu en Mikkalingurinn og Killerinn er ekki langt undan og þetta er fljótt að breytast.

Skráningin er hafin og minni menn á að melda sig fyrir miðnætti á fimmtudag (annað kvöld 😉

Lesa meira
  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…