Nýjust fréttir
Bounty tournament á föstudaginn
Það verða flestir mættir á fötsudaginskvöldið uppí bústað og ég var að spá hvort við prófum að hafa all bounty mót. Mér dettur í hug tvær útfærslur:
1. að annað hvort hækki bounty, þannig að fyrir fyrstu menn er það lítil upphæð (c.a. 25% af buy-in) og fer svo hækkandi (uppí 50% fyrir (næst)síðasta mann).
2. allir eru jafnir, þannig að fyrir hvern útslátt fær sá sem tók mann út hans buy-in.
Hvað segiði?
Lesa meiraEURO jackpot?
Hvað segja menn um að skjóta saman í einn 10 tölu kerfismiða í Euro Jackpot. Það er reyndar 80þ. eða rétt yfir 5þ kall á haus. Væri nú ekki verra að hitta vel á þetta saman og nokkrum milljörðum (já, þúsundir miljóna) til að skipta á milli okkar 😉
Síðan er líka hægt að taka kerfismiða í Lottó…en það eru bara einhverjar 14 milljónir og ekki milljón á mann 😉
Allir game í svona lottó?
Lesa meiraVika í bústað
Þá er vika þangað til að Bjólfsmenn fara að streyma úr bænum. Undirbúningur er í fullum gangi og verið er að samræma matarinnkaup og fleira. Einhver kostnaður verður við innkaupin og mögulega þrifin en búið er að ganga frá greiðslum fyrir bústaðinn.
Menn vilja jafnvel safnast saman í bíla, og fínt að menn láti vita hér hvenær þeir eru að fara, hverjir eru á bíl og hverja vantar far.
Ég á ekki von á að nokkur maður gleymi áfengi en til öryggis geta menn tekið auka kippu og gert upp bjórinn við Bjórmeistarann (hver sem það nú verður)…eða drukkið hana og gert upp síðar 😉
Uppgjörinu verður lokað innan fárra klukkutíma, þannig að ef þið eigið að eftir að svara þá grafiði upp þann póst frá mér 😉
Sjáumst vonandi allir í bústaðnum eftir viku…ef einhverjir sitja heima verða þeir bara að hlusta á Sigga Hlö og vonast eftir kveðju 😉
Lesa meiraSiðareglurnar rifjaðar upp…
Af gefnu tilefni minni ég menn á að renna yfir siðareglurnar okkar og þá sérstaklega bendi ég á 12. reglu sem ónefndur heiðarlegur spilar “gleymdi” henni, enda voru menn uppteknir að spjalla í leiðinni og alltaf hægt að reyna að skýla sér á bakvið það þegar menn eru ekki að fylgjast með, en reglurnar okkar er alltaf hægt að vitna í og þeir sem kunna þær geta ávallt beytt þeim og í 12. reglu segir:
Síðan er gott fyrir alla að muna að munnleg sögn ræður eins og segir í 4. reglu:
Nýr þúsari

Það fór vel um menn hjá Killernum í gærkvöldi og var spilað á 2 borðum með 5 á hvoru borði. Það var vel rúmt um alla og þegar að fyrstu 2 duttu út (í sömu höndinni) þá var sameinað á 8 manna lokaborð.
❤️😘