Blindralotur…2 dagar í bústað
Eins og alltaf þá lengjum við blindralotur í bústaðnum og gefum mönnum kost á að kaupa sig oftar inn. Upphæðir breytast ekki en nú geta menn gert endurinnkaup (re-buy) þrisvar sinnum (Bósi lestu þetta aftur til öryggis 😉
- Re-buy má gera 3 sinnum
- Eftir tvo tímana má fylla sig upp
- Bjórstig gilda fyrstu 4 loturnar, eða fyrstu 3 tímana…eða á meðan hvítir chippar eru enn á spilaborðinu (auðveldast að muna það þannig 😉
Eina breytingin á lotum er að fyrstu tvær eru nú 60 mín í stað 30 og lengist því í upphafi spils og hafa menn góðan tíma í upphafi spils á meðan blindir eru litlir til að koma sér fyrir…og taka áhættur ef menn vilja…en þó alltaf gott að hugsa hvenær er komið nóg.
Áætlað að byrja að spila 16:00 og matarhlé kl. 18:00…þangað til að það plan breytist 😉
Nánar um Blindralotur í bústað.
Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…