Bjólfur XV.2 – Mýsnar leika meðan aðrir sofa
Annað mótið var haldið í nýjum höfuðstöðvum Fjármálasviðs Bjólfs og ekki annað hægt að segja en að þetta lítur rosalega vel út hjá Fjármálastjóranum og gaman að fá að upplifa þetta áður en en er fullklárað eftir öll snöppin þar sem hann hefur leyft okkur að fylgjast með.
Lesa meiraBjólfur XV.1 – Húnninn er mættur!
Fimmtánda tímabilið hófs hjá Iðnaðarmanninum í gær og 12 Bjólfsbræður sem mættu til leiks eftir sumarfríið. Það er alltaf gott að sækja Iðnaðarmanninn heim og byrja tímabilið á kunnuglegum nótum…og Ég bíð eftir kvöldinu fékk að rúlla nokkrum sinnum í gegn í bland við dönsku útgáfuna, Nonna Reiðufé, Guns og fleiri slagara. Tækifærið var einnig nýtt til að færa Kapteininum (og frú) smá gjöf frá okkur í tilefni hnappheldunnar í sumar…þó að okkur hafi ekki verið boðið 😉
Lesa meiraBeðið eftir kvöldinu
Nú eru bara nokkur kvöld í að Bjólfur XV hefjist og til að létta biðina er komið lag fyrir tímabilið: Ég bíð eftir kvöldinu. Það var draumur um að ná þessu fyrir síðasta bústað…sem hefði verið skemmtilegt því að upprunalega lagið var merkilega fyrirferðamikið og ósjaldan sem Mikkalingurinn fékk menn til að spila fyrstu nóturnar til að koma sér í fíling. En það náðist ekki að fara í upptökur fyrir bústaðinn…en það náðist fyrir tímabilið.
Lagið er hið eina sanna Sleeping my day away með DAD og var gervigreind fengin til að hjálpa við að skrúbba sönginn í burtu svo við gætum sett okkar eigin söng yfir. Lucky fékk svo Kónguló í lið með sér að skella upptökum í gang síðustu helgi. Textinn fjallar um Bjólfsbróður sem vaknar á föstudagsmorgni og getur ekki beðið eftir að komast á Bjólfsfund um kvöldið og vaða í góðum félagsskap og ætlar sér mikinn í mótaröðinni en það fer ekki alltaf eins og menn sjá fyrir sér kvöldin.
Við munum vinna að myndbandi fyrir lagið á tímabilinu. Þannig að allir geta tekið þátt í því að safna efni og hugmyndum sem verða settar saman fyrir bústaðinn og myndbandið frumflutt þar. Sólókaflinn í laginu er upplagður til að koma með áróður, heilræði, fleygast setningar eða hvað annað sem ykkur dettur í hug og við munum safna myndefni á kvöldunum okkar (og jafnvel utan þeirra). Þannig að um að gera að taka upp einhver húmor/fíflaskap og koma (ásamt öllum hugmyndum) til Lucky sem mun sjá um myndbandsgerðina.
Þar með eigum við þrjá Bjólfsslagara og nú geta menn hlustað á hverjum degi (eða morgni eða nóttu) á meðan menn bíða eftir (póker) kvöldinu með Bjólfi. Stutt í fyrsta mót og Ég bíð eftir kvöldinu!
Lesa meiraHitað upp fyrir XV
Þá er bara vika til stefnu í að Bjólfur XV hefjist og gott að rifja upp markmið klúbbsins sem sett var af Stofnandanum fyrir um fjórtán árum síðan:
“Markmið klúbbsins er að sem flestir meðlimir hittist einu sinni í mánuði, fái sér nokkra kalda, spili póker og skemmti sér”.
Margt vatn hefur runnið til sjávar síðan þá…og nokkrir bjórar runnið í gegn um Bjólfsbræður líka og nokkrar fleygar setningar sem hafa flogið í gegnum árin tengdar bjór. Á síðasta heimamótinu á síðasta tímabili heyrðist ein fleyg sem ófáir Bjólfsmenn og aðrir hafa sagt í gegnum tíðina: “Ég er hættur að drekka…” nema í þetta skiptið bættist við “…0%”.
Þarna voru kannski einhverjir orðnir leiðir á óáfenga bjórnum?…eða tóku kannski einn þannig eftir að hafa verið í hærri prósentu fyrr um kvöldið?…hver sem ástæðan er þá er allt í boði í Bjólfi og menn drekka bara það sem þeir vilja…enginn að dæma neinn og við skálum fyrir okkur eins og við erum og teljum niður og bíðum spenntir og fullir eftirvæntingar eftir næsta föstudagskvöldi.
Hvort sem menn fái sér áfenga eða óáfenga drykki þá er nokkuð víst að það verður spilaður póker og við munum skemmta okkur eins og markmið klúbbsins segir til um og hefur átt við um öll kvöld okkar saman.
Lesa meiraHúnninn er mættur…til reynslu
Á síðasta aðalfundi var samþykkt að taka Húninn inn í klúbbinn og er hann því kominn á reynslu fram að næsta aðalfundi. Húnninn hefur mætt á mót hjá okkur þegar hann var leynigestur fyrir Kapteininn.
Uppáhalds höndin hans er 52…”eins og spilið” sem hann kennir mönnum við hvert tækifæri sem þekkja það ekki og hafa margir fengið að rembast við að leysa það í gegnum árin. Það hefur nú ekki fært honum mikla fjármuni…en spurning hvort hæfileikar þar muni gera eitthvað fyrir hann við pókerborðið hjá Bjólfi.
Sumir gætu séð líkindi með fyrrum bjólfsbróðir en Húninn er náskyldur “slakasta Bjólfsmann fyrr og síðar” eins og hann orðað það sjálfur og ætlar sér að slá bróður sínum við…amk þegar kemur að mætingu ;). Að minnsta kosti er hann viss um eitt: ef ekki næst sigur með góðri spilamennsku, þá verður það gert með góðu gríni.
Bjóðum Húninn velkominn í hópinn…amk í þetta reynsluár 😉
Lesa meiraEkkert óþarfa gambl
Nú erum minna en tvær vikur þar til að Bjólfur XV hefst og gott að rifja upp þessa fleygu setningu “Óþarfi að gambla…nema til að vinna” sem að Bóndinn lét falla á móti í desember 2017. Fékk þessi að fljúga oft þetta kvöld og ágætis regla til að spila eftir. Hún á líka ágætlega við klúbbinn þar sem það er nú ekki verið að gambla með neinar stórar upphæðir og allir fara sáttir frá hverju kvöldi þó þeir hafi ekki unnið neitt…enda er kostnaður að meðaltali (óábyrgt gisk pistlahöfundar) þrjúþúsundkall og hefur verið nánast það sama frá upphafi klúbbsins fyrir 15 árum (en reyndar voru innkaupin einhverntíman hækkuð úr 1500 í 2000 til að reyna að losna við 500kallana 😀
Spurning hverjir munu gambla meira en aðrir þegar við hittumst á fyrsta móti Bjólfur XV eftir 14 daga…mun Bóndinn mæta og gambla til að vinna? Mun heimavöllurinn telja fyrir Iðnaðarmanninn eða mun hann verða að ýta á menn að klára spilið þegar hann er dottin út? Mun Heimsi veðja bara á hjarta? Fer einhver allur inn í rímur með áttatíu og fimm? Hvað sem gerist þá er nokkuð víst það verður jafn gaman…ef ekki enn meira gaman en áður…jafnvel besta kvöld lífs þeirra sem mæta?
Lesa meira
Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…