Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Bjólfur XVII.2 – Ég hélt ég gæti ekki elskað þig meira

Skrifað af þann 10. Oct 2026 in xvii | Engar athugasemdir

Nú er annað kvöld Bjólfur XVII runnið sitt skeið með tilheyrandi látum og ævintýrum. Að þessu sinni lá leiðin suður með sjó, en Nágranninn bauð hópnum heim í SunnyKEF og tók á móti mannskapnum eins og alvöru greifi er von og vanda til.

Lesa meira

Bjólfur XVII hefst – Mikkalingurinn las framtíðina

Skrifað af þann 12. Sep 2026 in Fréttir, Mót, xvii | Engar athugasemdir

Það var komið að því. Sextánda tímabil Bjólfur var hafið og eins og lögmál Bjólfs gera ráð fyrir hófst ferðalagið hjá Iðnaðarmanninum, sem tók á móti bræðrum sínum eins og greifinn sem hann er alltaf. Veisla var framreidd, borðið tilbúið og allt til alls. Mætingin var þó í hóflegri kantinum – bara rjóminn af Bjólfi – og þeir sem mættu þurftu ekki að eyða löngum tíma í að komast að lokaborðinu. Menn settust einfaldlega niður og hófu leik á Lokaborðinu.

Lesa meira

Bjólfur XVI.9 – Bústaður og sextánda tímabilinu lokið

Skrifað af þann 17. May 2026 in Bústaður, Fréttir, Mót, XVI | Engar athugasemdir

Bjólfsbræður í bústað maí 2026

Bjólfsbústaðurinn stóð enn á ný undir nafni síðust helgi þegar 15 Bjólfsbræður mættu til leiks eftir að nokkrir enduðu á að sitja heima. Stóra bústaðnum var strax stillt upp sem höfuðstöðvum helgarinnar og eins og alltaf fór þar vel um hópinn — pláss fyrir alla og tveir heitir pottar sem héldu sínum sessi sem helstu fundarherbergi helgarinnar.

Þó vatnsstreymið hafi verið í rólegri kantinum yfir helgina var það lítið mál fyrir bræðurna sjálfa að sjá um „innra streymi“ gleðinnar, sem virðist alltaf hafa nóg afl þegar Bjólfur er annars vegar.

Lesa meira

Að tapa er verra en besti sigur! (Bjólfur XVI.8)

Skrifað af þann 11. Apr 2026 in Fréttir, Mót, XVI | Engar athugasemdir

Það voru 12 eðalbræður sem mættu á síðasta heimamótið í Bjólfur XVI, þegar Spaða Ásinn opnaði heimili sitt og bauð snemma í veigar og fyrirpartý — sem margir nýttu sér til hins ýtrasta.

Lesa meira

Ég kom ekki til að vera áhorfandi (Bjólfur XVI.7)

Skrifað af þann 7. Mar 2026 in Fréttir, XVI | Engar athugasemdir

Þrátt fyrir leiðindaveður létu menn það ekki stoppa sig og 13 félagar lögðu leið sína í Vesturbæinn þar sem Mikkalingurinn( eða Veiðimaðurinn eins og hann er stundum kallaður) bauð heim í sjötta skiptið frá upphafi Bjólfs og er í fimmta sæti yfir þá sem oftast hafa boðið heim á þessum sextán árum.

Lesa meira

Maður gengur aldrei frá óstokkuðum stokk (Bjólfur XVI.6)

Skrifað af þann 8. Feb 2026 in Fréttir, Mót, XVI | Engar athugasemdir

Á föstudaginn bauð Nágranninn heim í SunnyKEF, og endaði það með því að fjórir bílar lögðu af stað suður með sjó til að hittast í þriðja skiptið á heimavelli hans.

Lesa meira
  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…