Bjólfur XVII.2 – Ég hélt ég gæti ekki elskað þig meira

Nú er annað kvöld Bjólfur XVII runnið sitt skeið með tilheyrandi látum og ævintýrum. Að þessu sinni lá leiðin suður með sjó, en Nágranninn bauð hópnum heim í SunnyKEF og tók á móti mannskapnum eins og alvöru greifi er von og vanda til.
Brottför og morgunhanar
Dagurinn hófst snemma hjá sumum. Kapteininn settist snemma undir stýri á partýrútunni og byrjaði á því að skutast af stað til að sækja menn – þó að hann hafi reyndar ekki verið alveg eins snemma á ferðinni og Heimsi og Lucky, sem tóku pottinn snemma dags fyrir pickup. Massinn lét heldur ekki sitt eftir liggja, byrjaði daginn á langferð til landsins og mætti beint á völlinn til Nágrannans úrvinda af dugnaði.
Þegar ég hætti að drekka þá drekk ég bara allt öðruvísi
Eftirvæntingin fyrir að vera sóttur af partýrútunnin var alveg að fara með menn og fylltust samfélagsmiðlar af spenntum Bjólfsbræðrum stara út um gluggann að skyggnast eftir Kapteininum. Stemningin í rútuferðinni var heldur betur í hámarki og spurning hvort allir hafi nú farið sem fyllstu vinir í gegnum þá sálfræðimeðferð sem fylgdi ferðalaginu! Einhverjar tilraunir voru gerðar að bóka sálfræðitíma þegar komið var til Keflavíkur en sálfræðingurinn á heimilinu blés nú bara á að menn þyrftu þess. Einhverjir góðhjartaðir menn sáu einnig ástæðu til að færa bílstjóranum orkudrykki til að halda vöku á manninum (enda hafði hann óskað þess).
Ef ég segi eitthvað – þá geri ég það á endanum!
Veitingar og vísbendingar
Þegar á áfangastað var komið tók Nágranninn á móti hópnum með því að baka stórkostlegar frocetta pizzur. Það kom sér sérstaklega vel fyrir Mikkalinginn, sem hafði legið í svelti og ekki getað borðað í allan dag afhverju öðru en hreinum spenningi fyrir kvöldinu og hlustað á annað en Ég bíð eftir kvöldinu allan daginn.
Ég hélt ég gæti ekki elskað þig meira
Bjórguðirnir mæta til leiks
Mikkalingurinn sá einnig um að gera upp bjórinn með glæsibrag og það lífgaði eins yfir bjórguðunum. Spilað var á tvemur borðum að þessu sinni og guðirnir voru sannarlega á svæðinu því tvær svakalegar bjórhendur litu dagsins ljós:
- Fyrst malaði Bótarinn alla í alveg nýjum stíl með hús.
- Skömmu síðar tók Massinn lit með glæsilegri bjórhönd.



Það eru margir sem mættu taka Spaða Ásinn sér til fyrirmyndar…í drykkju
Sögustund í hléi
Í hléinu tók við eftirminnileg sögustund þar sem Bótarinn rakti frásögn af frægum einstaklingi sem mætti til leiks með ungum mönnum og rifjaði upp gamla takta. Sögunni fylgdu ótrúlegar en þó algjörlega skjalfestar (og þar af leiðandi sannaðar) staðreyndir.
Þetta er nú með betri eftirhermum af honum sem ég hef séð
Sumir reyndu svo að þrýsta á að fá endurtekningu á hinni alræmdu sögu Mikkalingsins frá fyrsta kvöldi tímabilsins, en menn verða nú bara að mæta á staðinn þegar sögurnar eru sagðar – það er ekkert sjálfgefið að góðar sögur séu endurtekar!

Úrslit og yfirlit yfir hverjir fór í pottnum
Þegar leið á kvöldið fóru menn að týnast frá borði og beint út í pottnum.

- Hobbitinn náði ekki að hanga líkt og oft áður, en gaf Massanum smá af sínum hæfileikum ásamt öllum spilapeningunum.
Maður setur ekki verðmat á vini sína
- Heimsi var í góðum gír eftir potta og marinerinu og þrátt fyrir að hafa veðjað Finnbogum villt og galið (og með ágætis árangri) þá var hann allt of spenntur að komast í pottnum (nr. tvö af áætluðum þremur) sem hann og gerði fyrstur manna.
Ég er búinn að bíða eftir Finnboga í allt kvöld
- Iðnaðarmaðurinn fagnaði smá próteininnspýtingu við komu en stoppaði ekki lengur við borðið en þriðji út og sjöunda sæti…en átti þó samfélagsmiðlapóst kvölsins og fékk hávært hrós frá samfélagsmiðlastjörnu Bjólfs.
Hvað meinarðu pínu fullkominn?
Læknirinn sagði að ég væri fullkominn
- Nágranninn fékk ekki að fara lengra á heimavellinum en skellti sér þá í pottapartýið með bros á vör.
Er þetta skipt gamlir móti ungum
- Mikkalingurinn náði ekki að halda þúsaranum frá síðasta móti og fékk amk loksins eitthvað að borða svo hann fór saddur og sæll frá borði.
Hann á ekkert að vera að drekka áfengi
- Massinn tók út Hobbitann og reyndi að nýta hobbitapeningana af mikilli list til að hanga sem lengst (í takt við gamlar hefðir), en varð þó að sáttur við fjórða sætið.
Þetta er ein besta tilfinning lífs míns
- Kapteininn tók til við að styrkja Lucky og virtist á tímabili ekki ráða við sig að hjálpa honum að komast aftur inní spilið…það fór sv að hann tók hinn svokallaða búbblu sess og missti af verðlaunasæti.
Það er vont…að vera einn á móti Lucky
- Í lokabaráttunni fór Lucky allur inn með sexupar…en…
- Bótarinn sýndi KJ, hitti fullkomlega og sigraði kvöldið með glæsibrag og virtist aldrei vera í neinni hættu.
Maðurinn sem botnar allt

Kvöldinu lauk svo með því að blautir pottgestar voru veiddir upp úr og þeim staflað aftur inn í bílinn – sem reyndar var örlítið þéttsetnari á leiðinni til baka þar sem Massinn bætist nú vel stappaður í hópinn.
Staðan í tililbaráttuni er nú að Kapteininn leiðir með einu stigi á Lucky og Mikkalinginn, en þetta rétt að byrja og allt getur gerst.
Takk fyrir frábæra kvöldstund og hressinguna í SunnyKEF! 🍺🃏🔥 næst er það nóvembermótið og svo makakvöldið.
…svo nokkrar fleiri fleygar sem fá að fljúga:
Hver ætlar að taka á dúknum?
Hvað er klukkan…níu…já það er regnbogtími
Bótarinn er kallaður Botnarinn í þessari ferð
Ég fer bara í sprautustöðina í Breiðholti
Þú ert eins og einhver hálfviti
Þú ert nýji Bjössi
Ég bara tapa og tapa
Ertu á bíl?
Þetta er Lucky Luke
Þetta er ömurlegt spil
Ég er RSK perri
Forréttinda Eiki
Þið eruð aumingjar….ég hef aldrei þolað ykkur…ég er farinn…bæ
Hvað gerði ég við fötin mín?
❤️😘