Bjólfur OPEN – Seyðisfirði
Senn líður að hinu árlega jólamóti Bjólfs á Seyðisfirði en það verður 30. desember og verður fyrirkomulagið svipað og síðastliðin ár. Það hefur verið góð stemning á þessum mótum undanfarin ár en þátttökugjaldið er 3.000 kr. og verður fjöldi spilara miðaður við 35.
Bjólfur invitational
Þá er jólahlaðborði Bjólfs lokið með fínnri þátttöku og góðri stemningu. Eftir að hafa skolað pizzum og borgurum niður með jólabjór var gefið í spil og fengu Bjólfsmenn ekki eins slæma útreið og á mótinu í fyrra á Rauða ljóninu en þó voru tveir boðsspilarar sem stóðu sig aðeins of vel.
Lesa meiraBók mánaðarins
Bók mánaðarins er eins og sniðin fyrir Bjólfsmenn. Hún er um lággjaldapóker en þó ekki fyrir neina byrjendur 😉
Small Stakes Hold´em eftir Ed Miller, David Sklansky og Mason Malmuth er um hvernig eigi að bæta sig í póker án þess að leggja háar fjárhæðir undir.
Lesa meiraSterk bönd
Blekið í Moggagreininni er rétt svo þornað þegar klúbburinn fær heilsíðu umfjöllun í Séð og heyrt. Það er ekki nóg með að umsóknum í klúbbinn rignir inn heldur vilja allir lesa um og sjá myndir af starfsemi hans og býst ég fastlega við símtali innan tíðar frá Skjá einum þar sem verður óskað eftir að gera raunveruleikaseríu um Bjólfsmenn. Það er erfitt að vera frægur á Íslandi og vonandi náið þið að gera jólainnkaupin óáreittir…barnanna vegna 😉
Lesa meiraÍslandsmeistari í póker
Mig langaði að benda ykkur amatörunum á að ég sló þennan dreng út einu sinni á Gullöldinni og fékk pening fyrir þar sem það var bounty á honum.
Lesa meira
❤️😘