Það sem koma skal frá Lommanum
Ég rakst á video sem nær vel utan um hverju þið eigið von frá mér í bústaðnum, þ.e. sjónhverfingum, brögðum og blöffi 😉
Lesa meiraKaffi Láran Open 2014
Páskapókerinn á Seyðisfirði í ár var haldinn á nývígðri efrihæð Kaffi Láru á skírdag. Vel fór um okkur og fín aðstaða til pókerhalds. Innkaupaverðið var 3.000 kr. og eitt re-buy leyft. Við þurftum að byrja snemma eða kl. 18:00 þar sem staðurinn lokaði klukkan 12:00. Fjórtán spilarar skráðu sig til leiks en gera má ráð fyrir að tímasetning og fermingar hafi haft örlítil áhrif á mætingu. Allir voru þó sáttir og þeir sem duttu út gátu skellt sér á neðri hæðina og tekið þátt í pub quiz.
Greitt var fyrir fjögur efstu sætin sem skipuðust þannig:
- Atli Gunnar (Gumma í láni) – 22.000 kr.
- Maggi (Siggu Fridda) – 13.000 kr.
- Daníel Örn – 8.000 kr.
- Jón Valur – 5.000 kr.
Bjólsmenn í víking!
Ég set hér texta úr pósti frá nýskipuðum ferðaformanni.
“Nú þurfum við að fara að horfa fram á við og koma Bjólfi á hærra plan.
Við höfum rætt það í gegnum tíðina að fara í utanlandsferð saman (kannski aðallega ég) en ef við byrjum að safna núna er mjög raunhæft að fara í túr saman í September 2015.”
MASSINN
Þetta yrði gjörsamlega stórkostlega ferð og eins og Gísli segir fullkomlega raunhæf. Það kemur alla vega 5.000 kall frá mér næstu mánaðamót.
Við getum kastað hugmyndum á milli hér og linkum á ferðir.
Pant fá gluggasæti og herbergi með mínum hrotfélaga
Lesa meiraJólamót Öldunnar 2013
Hið árlega jólamót Öldunnar var haldið þann 28. desember síðastliðinn. Líklega vegna slæmrar færðar á Fjarðarheiði voru engir aðkomumenn í fyrsta skipti. Það breytti þó ekki þeirri staðreynd að afar fáir Seyðfirðingar hafa farið með sigur af hólmi í þessum mótum því að Norðmaðurinn Manni rafvirki, Jói hennar Lísu Marenar og Gunni hennar Stellu röðuðu sér í þrjú efstu sætin.
Lesa meiraMót á Skaftelli
Þar sem nokkrir Bjólfsmðelimir voru staddir í Höfuðstaðnum um páskana skellti Lomminn í eitt mót á Skaftfelli. Það var fín mæting og góð stemning. Það væsti ekki um okkur í gallery-inu á efri hæðinni innan um listaverk nema við Listaháskóla Íslands þar sem allt er list, meira að segja myglaður matur sem lekur út úr sérsmíðuðu glerbúri. Mótið var þrælgott enda vann undirritaður 😉
Enn einu sinni vinnur Ísleifur sér inn pening í pókermóti á Seyðisfirði en hann lennti í öðru sæti. Ég hitti svo Elvu daginn eftir og hafði hún orð á því að hún væri að velta fyrir sér að gera strákinn út sem atvinnupókerspilara…
Kveðja að austan,
Lomminn
Lesa meira










❤️😘