Go-Kart
Af frumkvæði Loga mæta 8 galvaskir meðlimir í Go-Kart 10. maí kl. 2020:30. Um er að ræða svo kallað lítið race en það lítur svona út:
- 10 mínútur í tímatöku
- Ökumönnum eru svo raðað uppá ráspól eftir bestu tímunum og svo er tekið 20 hringja race í lokin.
- Tekur um það bil 25-30 mínútur í heild sinni.
Þeir sem ekki þorðu í kartið geta mætt á hliðarlínuna og séð um veðmálin og stuðninginn 😉
Þetta verður spennandi og gaman að gera e-ð svona. Flott framlag Logi.
Go-Kartið er á Stórási 4-6 Garðabæ.
Sjá kort af staðsetningu
Sérmerktar ölkrúsir
Löggð hefur verið inn pöntun fyrir merktum bjórkönnum fyrir alla meðlimi. Það er Bros sem sér um merkinguna og verða könnurnar afhentar í bústaðnum í maí. Það verður gríðarleg stemning þegar allir sitja saman við pókerboðið í bolunum með sérmerktar krúsir…(það er smá möguleiki að sumum þætti þetta nördalegt).
Lesa meiraKex og ostar
Það er að ekki að spyrja að því frekar en fyrri daginn þegar Iðnaðarmaðurinn er sóttur heim, veitir hann vel. Það er alveg spurning um að festa honum verðlaunasæti þegar hann heldur mót til að hann hafa upp í kostnað. Hann var með ostaþema að þessu sinni og gátu menn gætt sér á djúpsteiktum ostafingrum og osti í spraybrúsa ofan á kexið. Snakkið og hneturnar voru á kantinum og boðið var upp á klassískan GT auk bjórs fyrir þá sem gleymdu bjórnum sínum í frystunum heima.
Lesa meiraMót á föstud.
Jæja félagar, senn líður að næsta móti sem verður næst komandi föstudag (30. mars). Hver býður sig fram að halda það?
Við þurfum ekki að hafa áhyggjur af Massanum á þessu móti en Bósi virðist vera að ná sínu gamla formi, Eiki spilar alltaf sinn solid game og Logi mætir örugglega banhungraður eftir að tekið brúðkuapsferð með konunni fram yfir Bjólfsmót. Svo er auðvitað keppnin um 72 bjóra sem Pusi leiðir með mikilli sæmd.
Skoða stöðuna Skrá í mótLesa meiraBÓSI ER BESTUR!!!!!!!!!
Lokamót – strúktúr
Líkt og Massinn er ég svo spenntur fyrir bústaðnum að ég er strax farinn að plana strúktúrinn. Ég verð að játa að þrátt fyrir sigur á síðasta lokamóti er mótið ekkert í fersku minni en ég held að mótafyrirkomulagið hafa verið ágætt og reikna ég með svipuðu fyrirkomulagi í ár.
Lesa meira
❤️😘