Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Fleygar setningar og hvað mun fljúga á komandi tímabilil?

Skrifað af þann 3. Sep 2025 in Fréttir | Engar athugasemdir

Mynd frá síðasta Boðsmóti með uppskálduðum fleygum setningum sem gætu flogið á komandi tímabili

Nú þegar nýtt tímabil er að hefjast munu nýjar fleygar setningar óhjákvæmilega fljúga yfir spilaborðinu. Þær eru hvorki reglur né tilskipanir – heldur speglar þess sem raunverulega gerist þegar spilin eru gefin og við sökkvum okkur ofan í félagsskapinn á föstudagskvöldum.

Lesa meira

Mótsmetið hækkaði í 59 á síðasta tímabili 💪

Skrifað af þann 2. Sep 2025 in Fréttir | Engar athugasemdir

Lucky á góðri stund á Bjólfur XV

Það fékk ekki að standa lengi metið sem Mikkalingurinn setti í annarri mótaröð XV þegar hann náði 57 stigum og sló þar með gamalt stigamet. Í þriðju mótaröðinni steig Lucky fram og var nánast óstöðvandi – hann tók tvo sigra og það var aðeins Lomminn sem náði að stoppa hann af á síðasta mótinu í bústaðnum. Með því hindraði hann Lucky í að taka fullkomið mót, en þó ekki í að setja nýtt met.

Lesa meira

XV. Bjórguðinn 🍻

Skrifað af þann 1. Sep 2025 in Fréttir | Engar athugasemdir

Kapteinninn hæstánægður með eitt af sínum bjórstigum á síðasta tímabili

Kapteinn kom, sá og sigraði bjórinn í fyrra með því að landa bjórstigi á lokamótinu og stinga aðra af með einu einasta stigi. Þar með jafnaði hann metið í Bjórguðunum með því að taka titilinn í fjórða sinn og stíga upp að hlið Lucky og Timbrsins.

Lesa meira

Nýtt tímabil – ný tækifæri? 🔥

Skrifað af þann 29. Aug 2025 in Fréttir | Engar athugasemdir

Ljósmynd frá afmælismóti Bjólfs 2012

Kæru félagar, nú er komið að því að eftir viku hefst 16. tímabil í sögu Bjólfs eða BJÓLFUR XVI, og fyrsta mótið fer fram föstudaginn 5. september hjá Iðnaðarmanninum og auðvitað byrjum við tímabilið hjá Gestgjafanum…það var reyndar rafmót 2020 þegar að Covid var í gangi og síðan XIII (2022) er í eina skiptið sem við byrjuðum ekki hjá Iðnaðarmanninum þegar hann þurfi að afturkalla heimboðið á fyrsta kvöld og Mikkalingurinn hljóp undir bagga og er því eini annar sem hefur haldið fyrsta mót.

Lesa meira

Bjólfur XV.9 – Bústaður og fimmtánda tímabilinu lokið 🎉

Skrifað af þann 26. May 2025 in Bústaður, Fréttir | Engar athugasemdir

Bjólfsbræður í bústað, maí 2025

Ótrúleg helgi að baki með snillingunum þar sem við fögnuðum 15 ára starfsafmæli okkar með stæl! 🔥

Lesa meira
  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…