Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Nýtt mót…nýr völlur

Skrifað af þann 11. Mar 2013 in Blog | 2 athugasemdir

Gummi býður heim á föstudaginn þannig að það er aftur nýr völlur og spurning hvort hann nær að nýta sér heimavöllinn. Þetta er annað kvöldið af fjórum í síðustu mótaröðinni og skráningin er þegar komin af stað.

Mótið verður að Lautasmára 45 (milli Sporthússins og Smáralindar).

Mikkalingurinn, Timbrið & Hobbitinn eru efstu menn í lokamótinu en línurnar gætu breyst eftir þetta mót.

Hver er annars með borðið & töskuna?

Lesa meira

Keppnin um síðustu stjörnuna er hafin

Skrifað af þann 2. Mar 2013 in Fréttir | 4 athugasemdir

Á heimavelli Bósa settumst við 11 niður við Lommaborðið. Það er alltaf erfitt að vera svona margir við borðið en bara kósy…NO HOMO 😉

Gestgjafinn var undirbúinn: viskí & tilbúin glös fyrir menn til að ganga í.

Spilið hófst og ekki var nú sérlega mikið um innkaupa en nokkrir hækkuðu aðeins pott kvöldsins. Timbrið byrjaði af miklum krafti og náði að halda því þokkalega út. Ég var hins vegar ekki að fá nein spil (og lítíð hægt að gera með 10 aðra við borðið þegar maður hefur ekkert).

Ásapar á hendi kom oftar en einu sinni. Ekki voru menn alltaf að ná að halda út á því, einhverntíman lét það í lægri hlut fyrir setti af 8. En þegar Eiki Bót sat með ásaparið á hendi og átti líkið af chippum var hálf sorglegt fyrir hann að eiga ekki góðan stafla þar sem það mættu 2 ásar í borð til viðbótar.

Gummi var með yfirhöndina með tvö pör á móti Bósa með ásapar þegar par í borð á river sendi Gumma heim. Pusi var næstur út og svo Gunnar Axel áður en ég fór allur inn með JJ en staflinn minn var lítill og Hobbitinn sá hann án umhugsunar með ÁK og hitti á kóng og sendi mig heim og náði í þúsarann sem var á mér. Þá vorum við Hafnfirðingarnir báðir dottnir út og ákváðum að segja þetta gott og rúllum heim í fjörðinn.

Nú verða aðrir að kommenta og fylla uppí hvernig leikar fór eftir þetta. En Massinn sendi mér mynd af úrslitunum sem eru komin inná stigatöfluna. Bósi rétt missti af verðlaunum á heimavellinum en Hobbitinn náði að tóra í 3ja sætið. Timbrið var að láta sér nægja 2 sætið fyrir Mikkalingnum sem tók sigur í fyrsta kvöldinu í lokamótaröðinni í ár. Þetta er gott mót til að standa sig vel þar sem það er einu kvöldi meira og lokapotturinn verður því mun hærri og menn verða að halda áfram að saxa á forskott mitt í meistarabaráttunni til að gera hana spennandi 😉

Lesa meira

Nýr völlur

Skrifað af þann 26. Feb 2013 in Blog | 1 ummæli

Bósi býður heim í fyrsta kvöldi í lokamótaröðinni sem hefst á föstudaginn. Nú er spurning að sjá hvernig hann fer með heimavöllinn en hann hefur reynst sumum góður en öðrum misvel…spurning hvort hann gefi okkur jafnvel upp nánari staðsetningu?

Gummi & Robocop eru komnir uppá bragðið með verðlaunafé og gætu látið til sín taka.

Logi er með rosalega forystu í Bjólfsmeistarabaráttunni eftir að hafa stolið annari mótaröðinni í blálokin. Þannig að klárt að menn verða að fara að skila inn stigum ef menn ætla að nálgast hann því það gefur ekkert að vera í 2. sæti í þeirri keppni 😉

Skráningin er hafin.

Bósi spilar eins og þessir 9 samstarfsmenn hans…af “heiðarleika”.

Lesa meira

Bók mánaðarins:

Skrifað af þann 22. Feb 2013 in Bók mánaðarins | Engar athugasemdir

Núna er röðin komin að The Poker Blueprint eftir Aaron Davis og Tri Nguyen þar sem þeir fara yfir helstu atriði í póker og margir góðir punktar sem menn geta pikkað þarna upp.

Það veitir ekki af að fara bæta spilamennskuna og gefa aðeins í fyrir lokamótið sem byrjar eftir viku. Nú fer hver að verða síðastur að ná sér í ★ og allar styttist alltaf í lokamót tímabilsins sem allir bíða spenntir eftir =)

Sækja bókina
https://bjolfur.is

Lesa meira

Sending til klúbbsins

Skrifað af þann 20. Feb 2013 in Blog | 1 ummæli

Það kom ný sending í póstinum í dag. Góðhjartaður meðlimur sem passar vel uppá að þetta sé allt til staðar þegar að næsta móti kemur og alltaf gaman að fá sendingu til klúbbsins.

Ég held að svona góðverk fari beint í karma hjá viðkomandi og hann verður ábyggilega stórhættulegur í næsta spili eftir rúma viku =)

Lesa meira
  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…