Kveðjur frá forystusauðnum
Til að jafna aðeins í spennunni um Bjólfsmeistarann 2012 ætla ég að sleppa næsta móti…en reyndar er ég með annað í gangi sem mér finnst mikilvægara en póker…ótrúlegt en satt, Massinn var einmitt að spyrja hvað þyrfti til að stoppa mig…amk virðist brúðkaupsferð gefa ykkur frí frá mér…en það verður víst bara í þetta eina skipti 😉 Skemmtið ykkur á föstudaginn hjá Formanninum =)
Lesa meira33 afmælispóker 9Q
Bjólfsmeistarinn 2011 býður til afmælisveislu í tilefni góðs pókersaldurs 3♥3♦ með pizzu og póker þann 9♣Q♠ næstkomadi.
Lesa meiraFyrstu mótaröðinni líkur eftir viku
Næsta föstudag munu úrslit í M1 liggja fyrir.
Skráningin er farin af stað og allir passa uppá að skrá mætingu á réttum tíma eða fá að kenna á því 😉
Lesa meiraTímabilið hefst
Ásinn (einnig þekktur sem Iðnaðarmaðurinn og einnig sem Stjórnmálafræðingurinn) býður heim á fyrsta mót tímabilsins. Vel til fundið þar sem við munum væntanlega spila fram yfir miðnætti og þá verður komið afmæli hjá gestgjafanum.
Lesa meiraUppskerumót 2011
9 Bjólfsmenn hittust og tóku smá upphitun fyrir komandi leiktíð. Auk þess var bolum, meistarahúfunni og öðrum verðlaunum dreift, þannig að þetta var svona annað uppgjör á síðasta keppnistímabili.
Bjólfsmeistarinn minnti á sig og tók mótið og var Massinn í öðru sæti og var hann vel að því kominn fyrir að hýsa okkur eins og oft áður.
❤️😘