Innkaupalisti í Krónunni
Reykjavík 7. maí 2015
Pókerklúbburinn Bjólfur
Hjallabraut
220 Hafnarfjörður
Efni: Matarinnkaup
Hæstvirti formaður og aðrir virðulegir klúbbmeðlimir.
Undirritaður hefur ekki fengið að sjá neinn matarinnkaupalista eða í það minnsta ekki fundið hann í samförum síðustu daga. Vil ég því hér með koma á framfæri að það verður að kaupa mjólk og KEX. Þá gæti einhver spurt: “Hvaða kex?” Homeblest er gott báðum megin og svo er Ballerina með núggati geymt í ísskáp tilvalið.
Með fyrirfram þökk um rétt viðbrögð
Robocop Copson
Lesa meiraÁrshátíð – Bústaður
Sælir, varðandi bústaðaferðina þá mun ég athuga með fyrstu helgina í júní þegar opnað verður fyrir úthlutun sumartímans. Mér skilst að lífeyrisþegar hafi forgang !!! en sjáum hvað setur … það eru víst einhverjar úthlutunarreglur! En annað sem mig grunar er að það er bara hægt að leigja bústað í viku í senn yfir sumartímann svo ef einhver annar veit um bústað sem hægt er að leigja í einn til tvo sólarhringa þá láta vita.
b.kv.robocop
Lesa meira
❤️😘