Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Bjólfskviða

Keppnin um stjörnu nr. 2 hefst á morgun

Skrifað af þann 6. Dec 2012 in Blog | 3 athugasemdir

Keppnin um stjörnu nr. 2 hefst á morgun

Mótaröð 2 byrjar á morgun og þá hefst keppnin að 2. stjörnu ársins og nýjum lokapotti. Menn eru orðnir hungraðir í spil þar sem við tókum eina auka viku á milli móta að ósk mín þar sem ég ætlaði að gera vel við menn og bjóða uppá pizzu & bjór fyrir spil sem ætti að gera upp fyrir auka vikufríið 😉 Það lítur allt út fyrir að við verðum á 2 borðum eins og síðast enda margir sem ætla sér stóra hluti og verður fróðlegt að sjá hvernig þetta fer allt fram. Munið bara að það er mæting kl. 19:00 í pizzu & bjór...

read more

Hvert er uppáhalds pókerlagið þitt?

Skrifað af þann 20. Nov 2012 in Blog | 5 athugasemdir

Hvert er uppáhalds pókerlagið þitt?

Ég verð að segja að “Back down” með meistara Johnny Cash kemur mér alltaf í póker gírinn. Þetta lag er líka ákveðin gröf sem maður kemur sér oft í þegar það er bara ekki hægt að gefst upp með góða hönd eða annað sem heldur manni inní spilinu. Hvert er ykkar uppáhalds pókerlag?

read more

Undirbúningur fyrir næsta mót hafinn

Skrifað af þann 13. Nov 2012 in Blog | 7 athugasemdir

Undirbúningur fyrir næsta mót hafinn

Það er þegar byrjað að undirbúa næsta næsta mót. Ég verð nú seint candídat fyrir gestgjafa ársins þar sem ég er yfirleitt upptekinn af því að stilla upp fyrir spili og þegar ég sest gleymi ég alveg að bjóða uppá eitthvað þó ég hafi ætlað það 😉 En það verður mæting snemma á næsta mót og elduð pizzu fyrir alla sem mæta snemma. Í gær fór ég svo í síðbúna ferð í Vínbúða til nágrannans (sem er ekki nágranni 😉 þar sem að búin hans er opin langt fram eftir kvöldi. Við áttum með okkur góð viðskipti og fór ég út með veigar fyrir mótið sem er eftir...

read more

Hugsað um klúbbinn

Skrifað af þann 6. Nov 2012 in Blog | 2 athugasemdir

Hugsað um klúbbinn

Í póstkassanum hjá Formanninum í dag var lítill pakki frá meðlimi sem klárlega hugsar um klúbbinn sinn. Á síðasta móti kláraðist ákveðin munaðarvara og í pakkanum var ný sending af þessum nauðsynlega fylgihlut í tösku félagsins. Það er gaman að sjá menn hugsa svona vel um klúbbinn og ekki hægt að segja annað en að hér sé á ferð mikill meistari sem fær þakkir fyrir fallega hugsun =)

read more

Þúsarinn

Skrifað af þann 6. Nov 2012 in Blog | Engar athugasemdir

Þúsarinn

Ég rak augun í það að pókerforritið sagði að ég hefði fengið þúsarann eftir síðasta mót þar sem enginn náði honum af mér. En við höfum alltaf látið hann ganga áfram (og það er tvöfaldur þúsari á mér næst) en það er spurning hvort menn vilja breyta því þannig að sá sem er með bounty á sér hafi möguleikann á að vinna það með að lifa af?

read more

Karma?

Skrifað af þann 3. Nov 2012 in Blog, Myndir | 2 athugasemdir

Karma?

Síðasta mótið í fyrstu mótaröðinni (nefnt Dauðamótið) var tekið hjá “Lucky Luke” og ég held að það sé alveg sannað að það ákveðin “heppni” sem fylgir honum/mér þó svo ég geti vissulega líka verið “óheppinn”… og dottið fyrstu manna út á lokamóti. Timbrið var í góðri stöðu fyrir mótið með 3ja stiga forskot. Logi var á eftir honum og sendi honum fljótlega tóninn með að taka hann út í upphafi kvölds eftir hálftíma spil. Nokkrir keyptu sig inn aftur og ekki leið á löngu eftir að ekki mátti kaupa sig inn að...

read more

Bjóruppgjör síðasta tímabils

Skrifað af þann 1. Nov 2012 in Blog | 1 ummæli

Bjóruppgjör síðasta tímabils

Það eiga nokkrir eftir að gera upp bjórinn frá síðasta tímabili. SÁÁ mætir þannig að það er upplagt tækifæri að ganga frá því. Uppgjörið er hluti af bókhaldinu og hægt að sjá það í flipanum “Innkoma 2012” neðarlega (fyrir ofan commentin) á bókhaldssíðunni.

read more

Dauðapóker á föstudaginn

Skrifað af þann 29. Oct 2012 in Blog | 3 athugasemdir

Dauðapóker á föstudaginn

Þá er komið að fyrstu stjörninni, fyrstu úthlutun úr lokapottin og enn einu góðu kvöldi þar sem félagarnir setjast yfir pókerborðið. Þetta mót er á Degi hinna dauðu og því vel við hæfi að kalla þetta Dauðamótið en það munu einhverjir detta dauðir frá lokapottinum ef þeir ná ekki að rúlla upp mótinu. Timbrið leiðir enn keppnina og Logi náði einu stigi á hann með sigri síðast en það eru fyrstu 3 sætin sem gefa hlut í lokapottinum þannig að flesir eru ekki bara að keppa um pott kvöldsins heldur geta menn náð í skerf af lokapottinum með að ná í...

read more

7 góð ráð fyrir hið fullkomna pókerfeis

Skrifað af þann 12. Oct 2012 in Blog | Engar athugasemdir

7 góð ráð fyrir hið fullkomna pókerfeis

Hér er skemmtileg grein um að setja upp gott pókerfeis sem einhverjir gætu lært eitthvað af…ég væri til í að sjá menn senda inn myndir ef þeir fara að æfa sig fyrir framan spegilinn eins og mælt er með í 7. punkti 😉

read more

Heppni eða ekki?

Skrifað af þann 7. Oct 2012 in Blog, Myndir | 9 athugasemdir

Heppni eða ekki?

Mikill spenningur var í loftinu fyrir 2. kvöldið í fyrstu mótinu þegar menn fór að streyma í Casino Massinn einn af öðrum og Timbrið mætti með nýja rétti (& gamla góða) úr vinnunni sem var sérstaklega skemmtilegt og lífgaði uppá stemmninguna…þó svo að jalapenjo hafa orsakað full mikinn viðrekstur undir lok spils hjá sumum 😉 12 meðlimir mættu og langt síðan hefur verið spilað á 2 borðum en auk þess mættu nýliðarnir 2 og fengu húfur í tilefni þess að vera komnir í klúbbinn og verður gaman að sjá hvernig þeir eiga eftir að standa sig. Rólegt...

read more
  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…