Bjólfskviða
Bók mánaðarins endurvakin
Það er kominn tími til að skella aftur í gang bók mánaðarins og ekki einna vænna að menn fari að girða sig í brók eftir síðasta opna mót 😉 Að þessu sinni er það Tournament Tactics þar sem Roy Rounder fer sérstaklega yfir hvernig eigi að bera sig að þegar verið er að spila í mótum. Þannig að þessi bók á vel við hjá okkur og nú er bara að skella sér í smá lestur og byrja að massa þetta. Sækja...
read moreMót á Skaftfelli
Lomminn skellti í smá mót á Skaftfelli sem verður líklega upphafið af Pókerklúbbnum Strandatindi. Bjarki Borgþórsson gerði sér lítið fyrir og hirti 1. verðlaun en Láru-smiðirnir Reynir og Mundi voru með...
read moreMeð Hobbitanum á Hobbitann
Einhverntíman hafði Hobbitinn orð á því að við ættum að fylgja honum í bíó…er einhver áhugi fyrir að fara í þessu hættuför?
read moreGestir stóðu sig vel á BJÓLFUR OPEN 2013
10 hittust í mat og endaði í 22 sem settust niður á Ljóninu í gærkvöld og spilað var á 3 borðum. Ekki var nú sami hraðinn á öllum borðum og áttu sumir erfitt að bíða lengi eftir mönnum og það er klárlega eitthvað sem þarf að passa uppá þegar verið er að spila á móti þar sem blindir hækka ört. Það slapp nú allt vel og engin ástæða til að hafa frekar áhyggjur af því en við gætum þurft að vera með klukku sem hægt er að kalla í og á hefur leikmaður bara ákveðinn tíma til að gera. Engin bjórstigÉg ákvað að hafa ekki 7-2 stig í boði fyrir...
read moreLjónið í kvöld
Það er allt tilbúið fyrir kvöldið og byrjað verður á Ljóninu klukkan 19:00 með mat en spilið byrjar 20:30. Það er jafnvel hægt að næla sér í far með að hafa samband og nýta ferðir 😉 Útlitið er um 20 manns…þannig að við gætum endað á 3 borðum.
read moreJólamótið 2012 – úrslit
Það voru 26 spilarar sem voru tilbúnir að taka þátt í jólamóti Bjólfs þetta árið í ausandi rigningu og slagveðri og þrátt fyrir óvissu með færð komu menn alla leið frá Breiðdalsvík. Í ár tóku tveir kvennmenn þátt og er gaman að segja frá því að önnur þeirra var móðir mín. Hún stóð sig bara þokkalega og hafði gaman af því að segja frá því að hún náði lengra en Jón Valur. Þó svo að það hafi verið gaman að mamma hafi tekið þátt, var mesta ánægjan yfir því að það var enginn annar en Bjólfsmaðurinn Eiríkur frá Bót sem hreppti 1. sætið sem góðri...
read moreSeyðisfjarðarmótið 2012 á Öldunni
Hið árlega jólamót Bjólfs verður haldið föstudaginn 28. des. Húsið opnar kl. 19:30 og mótið hefst kl. 20:00. Þátttökugjald er 4.000 kr. og sérstök aukaverðlaun fyrir að slá Dýra út. Það hefur verið gríðarlega góð stemning á þessum mótum og færri hafa komist að en vilja. Ekki láta þig vanta á þennan skemmtilega viðburð, þó ekki væri nema til að kíkja á stemninguna. Umfjöllun og myndir frá mótinu í...
read moreBjólfur Open 2013
Föstudaginn 4. janúar 2013 verður næsta mót hjá okkur og að þessu sinni er það BJÓLFUR OPEN 2013 þannig að menn hafa leyfi til að bjóða gestum. Mótið verður á Rauða Ljóninu og sagði ég eigandanum að við værum heiðurmannaklúbbur og myndum versla við hann eins og alltaf. Þannig að það er mæting uppúr 19:00 fyrir þá sem ætla að hittast og borða fyrir spil en annars hefst spil kl. 20:30. Ég mun mæta í mat og vonast til að sjá sem flesta, endilega kommentið á það eða setjið það með í athugasemd í skráningu.. Fyrir gesti er hægt að lesa nánar um...
read moreMótaröð 2 komin af stað
Það var góður hópur sem tók þátt í fyrsta kvöldi 2. mótaraðar þar sem boðið var uppá pizzur & bjór. 13 spilarar settur niður og ýmislegt sem gerðist þessa 4 tíma sem leikar stóðu. Kári killer náði sér í prik í bjórkeppninni og stendur þá jafn hinum 5 sem voru þegar búnir að ná sér í stig og er allt opið í þeirri keppni. Stofnandinn náði ekki að ógna mikið og var með fyrstu mönnum út í þetta skiptið eftir góða innkomu á Lommamótinu um daginn. Þegar 4 voru eftir og spurning hver yrði “bubble” (fengi ekki 4) fór ég inn með Á♠4♠...
read more
❤️😘