Bjólfskviða
Nýtt mót…nýr völlur
Gummi býður heim á föstudaginn þannig að það er aftur nýr völlur og spurning hvort hann nær að nýta sér heimavöllinn. Þetta er annað kvöldið af fjórum í síðustu mótaröðinni og skráningin er þegar komin af stað. Mótið verður að Lautasmára 45 (milli Sporthússins og Smáralindar). Mikkalingurinn, Timbrið & Hobbitinn eru efstu menn í lokamótinu en línurnar gætu breyst eftir þetta mót. Hver er annars með borðið & töskuna?
read moreKeppnin um síðustu stjörnuna er hafin
Á heimavelli Bósa settumst við 11 niður við Lommaborðið. Það er alltaf erfitt að vera svona margir við borðið en bara kósy…NO HOMO 😉 Gestgjafinn var undirbúinn: viskí & tilbúin glös fyrir menn til að ganga í. Spilið hófst og ekki var nú sérlega mikið um innkaupa en nokkrir hækkuðu aðeins pott kvöldsins. Timbrið byrjaði af miklum krafti og náði að halda því þokkalega út. Ég var hins vegar ekki að fá nein spil (og lítíð hægt að gera með 10 aðra við borðið þegar maður hefur ekkert). Ásapar á hendi kom oftar en einu sinni. Ekki voru...
read moreNýr völlur
Bósi býður heim í fyrsta kvöldi í lokamótaröðinni sem hefst á föstudaginn. Nú er spurning að sjá hvernig hann fer með heimavöllinn en hann hefur reynst sumum góður en öðrum misvel…spurning hvort hann gefi okkur jafnvel upp nánari staðsetningu? Gummi & Robocop eru komnir uppá bragðið með verðlaunafé og gætu látið til sín taka. Logi er með rosalega forystu í Bjólfsmeistarabaráttunni eftir að hafa stolið annari mótaröðinni í blálokin. Þannig að klárt að menn verða að fara að skila inn stigum ef menn ætla að nálgast hann því það gefur...
read moreBók mánaðarins:
Núna er röðin komin að The Poker Blueprint eftir Aaron Davis og Tri Nguyen þar sem þeir fara yfir helstu atriði í póker og margir góðir punktar sem menn geta pikkað þarna upp. Það veitir ekki af að fara bæta spilamennskuna og gefa aðeins í fyrir lokamótið sem byrjar eftir viku. Nú fer hver að verða síðastur að ná sér í ★ og allar styttist alltaf í lokamót tímabilsins sem allir bíða spenntir eftir =) Sækja bókina...
read moreSending til klúbbsins
Það kom ný sending í póstinum í dag. Góðhjartaður meðlimur sem passar vel uppá að þetta sé allt til staðar þegar að næsta móti kemur og alltaf gaman að fá sendingu til klúbbsins. Ég held að svona góðverk fari beint í karma hjá viðkomandi og hann verður ábyggilega stórhættulegur í næsta spili eftir rúma viku =)
read moreDie hard og bakpoki
Sælir félagar! takk fyrir föstudaginn. Hann var mjög skemmtilegur. var að velta því fyrir mér hvort væri stemmari fyrir bíóferð á Willisinn? ps einhver gleimdi svörtum bakpoka hjá mér. Iðnaðarmaðurinn
read moreLangt og gott Lommamót
Lomminn reið nú ekki feitum hesti frekar en margir. En það var Bjólfsmeistari síðasta árs sem tók sigurverðlaunin og í hinum verðlaunasætunum voru menn í fyrsta sinn að ná í peningaverðlaun þannig að verður gaman að sjá hvort Gummi & Gunni séu ekki komnir á bragðið og verði til alls líklegir í síðastu mótaröð tímabilsins sem byrjar eftir 2 vikur. Gott mót…þó svo að ég hafi setið full lengi eftir í cash-game-inu og endað svo á að taka bíltúr um allt höfuðborgarsvæðið…sem allt kom full mikið niður á nætursvefni…en engu að...
read moreAukamót með Lommanum
Stofnandinn er á leiðinni í bæinn í næstu viku og það var rætt um að skella í póker föstudaginn 15. febrúar með honum. Hann er til og þá er bara að sjá hverjir eru game og hver býuður fram aðstöðu? Síðast þegar hann mætti í bæinn þá stóð hann sig vel…spurning hvernig honum gengur núna? Engin formleg skráning, tilkynnið þáttöku með commentum og látið vita ef þið bjóðið heim.
read more2. mótaröðinni lokið
Við Pusi vorum aðeins í seinna falli og allir aðrir mættir þegar við náðum loks í hús. Casa Mass er orðin að lúsxus íbúð og ekki hægt annað en að hrósa Massanum fyrir flottar breytingar þó svo að skúrnum verði sárt saknað þá var ánægjulegt að eiga smá kveðjustund á helsta heimavígi klúbbsins í gegnum árin. Í tilefni þess að skúrinn var kvaddur mætti sjaldséður bróðir sem iðulega sat með okkur í skúrnum fyrir mörgum árum og gaman að sjá Heimir aftur á meðal okkar. Byrjað af krafti Pusi fékk Gull greitt frá Hobbitanum og með þeirri greiðslu...
read moreVika í lokakvöldið í 2. mótaröðinni
Eftir viku verðum við staddir í Casa Massinn í síðasta skipti í bili. Bílskúrinn hefur nú verið pimpaður upp í high-end lúxus íbúð og ætlum við að kveðja skúrinn með spili og verður mikil eftirsjá af eiga ekki heimangengt þar en við munum ábyggilega taka spil hjá Massanum samt sem áður, enda á hann nóg af fermetrum til að bjóða í 😉 Skráningin er hafin og er Bósi í lykilstöðu fyrir síðastas kvöldið í báráttunni um sigur í mótaröðinni með 5 stiga forystu á næstu menn. En hörð barátta er um annað sætið þar sem Logi, Kári & Iðnaðarmaðurinn...
read more
❤️😘