Bjólfskviða
Siðareglurnar rifjaðar upp…
Af gefnu tilefni minni ég menn á að renna yfir siðareglurnar okkar og þá sérstaklega bendi ég á 12. reglu sem ónefndur heiðarlegur spilar “gleymdi” henni, enda voru menn uppteknir að spjalla í leiðinni og alltaf hægt að reyna að skýla sér á bakvið það þegar menn eru ekki að fylgjast með, en reglurnar okkar er alltaf hægt að vitna í og þeir sem kunna þær geta ávallt beytt þeim og í 12. reglu segir: Sýni virkur spilari viljandi annað eða bæði holuspil sín jafngildir það að pakka. Síðan er gott fyrir alla að muna að munnleg sögn...
read moreNýr þúsari
Það fór vel um menn hjá Killernum í gærkvöldi og var spilað á 2 borðum með 5 á hvoru borði. Það var vel rúmt um alla og þegar að fyrstu 2 duttu út (í sömu höndinni) þá var sameinað á 8 manna lokaborð. Timbrið byrjaði af krafti og tók út fyrstu tvo: Robocop & Mikkalinginn og tryggði sér þannig tvöfaldan þúsara fyrir að slá sigurvegara síðustu tveggja móta út (hann hafði lofað því að fara snemma og stóð við það 😉 Meistari síðasta árs var næstur út og gestgjafinn fylgdi honum á eftir. Pusi féll næstur út með 7-par á móti 10-pari hjá Loga...
read moreBjórkeppnin í fullum gangi
7♠2♥-keppnin er í fullum gangi. Logi náði einu bjórstigi með sigri á höndinni í síðasta móti og komst þar með uppfyrir Kára. Killerinn þarf því að vinna upp forystuna til að komast aftur á toppinn, en hann hefur hitt þetta nokkuð vel miðað við að hafa misst af 3 kvöldum á þessu tímabili…þannig að hann er til alls líklegur…heimavöllurinn gæti reynst honum vel á föstudaginn. En það má aldrei afskrifa SÁÁ síðasta árs sem jafnaði Killerinn með 2 stig með því að ná einu bjórstigi síðast. Það eru enn tvö kvöld eftir og allt getur gerst...
read more2000+ comment
Það tók ekki árið að bæta við þúsund kommentum og við upphaf tímabilsins voru þau bara 1000 en Lomminn átti 2000 kommentið þegar hann fór fögrum orðum um Mikkalinginn og sagði hann mun illilegri en Chuck Norris…enda klárlega meiri refur á ferðinni sem er búinn að vinna 2 síðustu mót.
read moreTvífaramótið í næstu viku
Næsta föstudag verður síðasta heimamótið áður en komið er að lokamóti ársins í bústaðnum. Ekki er komin endanleg staðsetning en það verður annað hvort hjá Killernum eða Bósa…kommentið endilega og látið alla vita. Skráningin er þegar byrjuð og menn byrjaðir að melda sig. 19. apríl er “Look alike day” og ýmsir meðlimir sem eiga sér “tvífara”. Sem dæmi tek ég hér Robocop Fishburne…og jafnvel skellum við inn fleiri tvíförum, ef þið viljið sjá eitthvað sérstakt þá látiði vita í commentum og ég photoshoppa 😉...
read moreMót á Skaftelli
Þar sem nokkrir Bjólfsmðelimir voru staddir í Höfuðstaðnum um páskana skellti Lomminn í eitt mót á Skaftfelli. Það var fín mæting og góð stemning. Það væsti ekki um okkur í gallery-inu á efri hæðinni innan um listaverk nema við Listaháskóla Íslands þar sem allt er list, meira að segja myglaður matur sem lekur út úr sérsmíðuðu glerbúri. Mótið var þrælgott enda vann undirritaður 😉 Enn einu sinni vinnur Ísleifur sér inn pening í pókermóti á Seyðisfirði en hann lennti í öðru sæti. Ég hitti svo Elvu daginn eftir og hafði hún orð á því að hún væri...
read morePóker tower – nýjasti klósettleikurinn ;)
Fyrir áhugasama um klósettleiki (símaleikir sem fínt er að grípa í á “góðri stund”) þá bendi ég mönnum á Poker Tower fyrir iPhone sem er samsæðuleikur sem byggir á pókerhöndum. Fín leið til að æfa sig í að sjá út pókerhendur, keppast við að gera það á tíma, eða safna stigum eða jafnvel berjast við skrímsli í leiðinni. Ég er þegar búinn að slátra nokkrum zombie-um, varúlfum og álfum og þetta gæti alveg hjálpað mönnum í að halda pókerhæfininni við á milli móta...
read moreNýtt borð fyrir bústaðinn
Er ekki málið að skella sér á nýtt borð fyrir bústaðinn? Verðmiðinn er bara 150 þús. eða skipti á bíl. Andri, værir þú ekki til í að láta Excortinn í skiptum 😉
read morePassið spilin ykkar
Hér er gott dæmi um það að spilarar verða að passa spilin sín jafnframt því að hafa þau á borðinu:
read moreHvalurinn ósigrandi
Það var góður fjöldi af mönnum sem settir niður í 2 spilinu í lokamótaröðinni í gærkvöldi. Gummi bauð heim og uppá ýmsilegt gott að drekka þó menn hafi nú verið nokkuð rólegir… Spilið fór af stað með miklum æsing þegar Mikkalingurinn þurfi að kaupa sig inn eftir fyrsta spil og menn endurðu nokkrum sinnum all-in í fyrstu spilum. En þetta buy-in hjá hvalnum gafst honum vel og varð hann fljótt stór og mikill og erfiður viðureignar. Tvær bjórhendur komu í kvöld. Ég náði stigi og tók þar sem eins stigs forystu á Killerinn og Bjórmeistari...
read more
❤️😘