Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Bótarinn strikes again

Bótarinn strikes again

Bósi bauð heim í annað kvöld í fyrstu mótaröðinni á tímabilinu og 9 félagar sem settur niður við borðið.

Þar á meðal var Gummi Magg (aka Ásinn) mættur aftur eftir ársleyfi í pókerbúðum í Eyjum. Hann fékk könnuna sína sem er búin að vera í geymslu á meðan og gat loksins klætt sit upp í 2011 bolinn og mætt á mót með okkur. Gaman að fá hann aftur og það er nokkuð víst að “ásinn er alltaf góður” … sérstaklega spaðaásinn 😉

Bjór
bjor
Fleiri gerðu upp bjórskuldirnar og verð ég nú að viðurkenna að það er ekkert leiðinlegt að fá bjór í hvert skipti sem maður mætir 😉

Spilið byrjað
IMG_2999
Eins og sjá má af myndinni var vel dimmt yfir okkur á Bósastöðum en það má einnig sjá á myndinni að Rafvirkinn er mjög hugsi yfir þessu og Bósi þarf klárlega að kalla hann út til að taka rafmagnið í gegn…sem virtist vera að stríða eitthvað ljósum & símum 😉

Ekki var mikið um endurinnkaup en hins vegar var mikið um það að sami maðurinn var að safna chippum. Robocop var að hitta mjög vel framan að og þegar kom að hléi var hann um þrefallt stærri en næsti maður. Með um 90þ chippa, næsti maður 30þ og síðan voru menn 20þ og niður í um 10þ. Þannig að það leit allt vel út fyrir hann á þeim tímapunkti.

Sjöa-tvistur
Bjórhendur sáust ekki oft. Ef ég man rétt gaf einhver þá hönd upp þegar hækkað var á móti. En 72 dúkkaði þó upp þegar að Timbrið sýndi 72 þegar að floppið hafði verið JJ8 og Ásinn & Pusi voru báðir inná móti. K á river & 9 voru ekki að gera neitt fyrir Timbrið sem reyndi að representa gosana en var séður af Ásnum með 89 en Pusi sýndi 8Á þannig að Gummi tók þá hönd með níuparinu og engir bjórstig skiluðu sér í hús. En Gummi var kampakátur enda búinn að taka nokkrar hendur með spaðaásnum líka 😉

Spilurum fækkaði
Einn af öðrum duttu menn út en engum tókst að ná þúsaranum af Bótaranum. Hann fór all-in með 14þ chippa og ég sá hann með um 12þ með kóng og lágspil á hendi á móti Ás og lágspili hjá Bótarnaum. 2 kóngar í borð gáfu mér sett en Bótarinn hitti á tvö spilin sem hann vantaði fyrir röðina og tók mig út…eftir það virtist sem að spilin færðust frá Robocop yfir á Bótarann sem hitti…litir, sett og jafnvel fleira sem hann þurfti ekki að sýna.

Endaleikurinn
Þegar hér var komið sögu var Bótarinn í vænlegri stöðu, Robocop átti eithvað enn eftir og Timbrið var þokkalega statt. En leikar héldu áfram sem áður og menn áttu lítið í Eika sem tók Timbrið út á húsi (minnir mig) og síðan var síðasta spilið dæmigert þar sem Gunni var allur inni með 1010 á móti 59 hjá Eika og í boðið kom 678 sem gaf Bótaranum röðina og annan sigurinn sem og þúsarann fyrir kvöldið.

Eiki er því í vænlegri stöðu eftir fyrstu tvö kvöldin og tvo sigra, það er klárt að hann ætlar að vera í toppbaráttunni í ár eftir að hafa ekki náð að halda í við gott gengi þarsíðasta ár.

test2

Gott kvöld að vanda 😉

Síðan var setið fram eftir nóttu og rætt um ýmsa góða menn og góð málefni. Pólitík bar jafnvel á góma og liggur við að það þurfi að setja reglu að ræða ekki hana á svona kvöldum þar sem það endar bara með ofhitnun hjá einhverjum á endanum 😉

Ein athugasemd

  1. Frábært kvöld að vanda og notalegt hjá Bósa, takk fyrr okkur.

    Nú er spurning hver ætlað að bjóða heim eftir 4 vikur þann 1. nóvember?

Skilja eftir ummæli

Your email address will not be published. Required fields are marked *

  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…