Casa de Mass á föstudaginn
Þriðja og síðasta mótaröðinn í tímabilinu hefst. Það er búið að opna aftur Casa de Mass eftir breytingar og verður gaman að fara aftur á “æskuslóðir” klúbbsins þó við höfum við uppfærðir í enn betra rými hjá gestgjafanum.
Keppnin er enn æsispennandi og verður fróðlegt að sjá hvort að einhverjir fara að skáka Bjólfsmeisturunum tvemur sem eru búnir að vera að skiptast á forystunni…enda einu mennirnir með fulla mætingu á tímabilinu en Mikkalingurinn og Killerinn er ekki langt undan og þetta er fljótt að breytast.
Skráningin er hafin og minni menn á að melda sig fyrir miðnætti á fimmtudag (annað kvöld 😉
Djöfulegt að missa af Casa de Mass, erum við að tala um skúrinn sjálfan?
Nei, skúrinn er peningaþvottastöð núna…við verðum í betri stofunni.
Þetta verður svaðalegt kvöld. Hlakka til:)
11 staðfestir, þannig að við verðum á 2 borðum…þetta verður massíft.
Timbrið mætir með pizzur kl. 19:00 hjá Massanum, þúsari á mann sem fer í ferðasjóðinn.
Það tilkynnist hér með að ég er búinn að skrá mig í bústaðsmótið og bóka flug í maí 🙂
Glæsilegt…það er móttekið…skráningin fór samt ekki alveg rétt í gegn (af einhverri ástæðu “eyðilögðust” öll mótin í uppfærslu um daginn).
Er búinn að skrá “ný” mót (og henda gömlu) þannig að skráningar fara nú réttilega í gegn 😉