Fyrsta mót ársins á föstudaginn
Eftir fjölskyldufrestun er komið að fyrsta móti almanaksársins föstudaginn 13. Að þessu sinni býður Massinn okkur í sinn rómaða skúr á nýjan leik og heyrst hefur að vegna ófærðar í sumarbústaðinn er Heimir að hugsa um að heiðra okkur með nærveru sinni. Það þarf að taka þann dreng ærlega í gegn og lesa honum pistilinn þar sem hann hefur ekki enn greitt árgjaldið né mætt á eitt einasta mót á þessu pókerári. Iðnaðarmaðurinn er búinn að skrá sig í mótið og lofar betrun í mætingu með betri forgangsröðun.
Skráningar eru farnar að detta inn og verður rauði penninn dreginn upp á miðnætti á fimmtudag!
Skrá í mótið
Ánægjulegt…maður er farinn að gleyma mannganginum þar er svo langt síðan síðast…kannski eru allir bjórarnir bara að valda mér vandræðum 😉
Annars er þessi mynd mjög skemmtileg, er þetta frá áramótunum heima núna og hvaðan er þetta tekið, úr skógræktinni?
Þessi mynd er frá Seyðisfjarðarmeistaranum 2011, Nikolas Grabar, og er frá 2010. Ég veit ekki nákvæmlega hvar hún er tekin.
Erum við að tala 2 borð í kvöld? Það er næstum 100% sem hefur nú ekki gerst lengi…það verður hörð keppni í kvöld.
Það verða klárlega tvö borð í kvöld. Það er bara Bóndinn sem kemst ekki þar sem hann er á sjó. Það er frábært að sjá svona góða mætingu (skráningu) enda er það ástæða þess að við tökum ekki fleiri inn í klúbbinn en það er alltaf að detta inn ein og ein umsókn.