Nýtt fyrirkomulag í næstu mótaröð
Það verður örlítið breytt fyrirkomulag í næstu mótaröð (M3). Það er eitt mót eftir í þessari mótaröð (M2) og því tekur þetta fyrirkomulag ekki gildi fyrr en eftir næsta mót.
Fyrirkomulagið ER skjalfest á síðunni og því gott og gilt fyrir næstu mótaröð 😉 Þetta er afbrigði sem við spiluðum í afmælismótinu hans Loga með örlítið lagfærðum upphæðum. Nú kaupa allir sig inn fyrir hámarksupphæð og ráða hvenær þeir taka hluta af staflanum sínum.
Ég held að það sé nauðsynlegt að breyta aðeins til inn á milli þó svo að við höldum alltaf í þann góða grunn sem við höfum búið okkur til. Mér fannst þetta skemmtileg tilbreuting eins og við spiluðum hjá Loga.
Sammála, um að gera að prófa þetta í eitt mót og sjá hvernig þetta virkar.