Nýjust fréttir
4 dagar í bústað – Hvernig varð Bjólfsmerkið til?
Logo Bjólfs varð til sumarið 2010 þegar að Lomminn bað Loga Helgu að koma með hugmynd að logo og hann hripaði niður þessa hugmynd á blað sem var grunnurinn að logo-inu:

Eftir nokkrar ítranir á því var komin niðurstað sem þeir voru sáttir við.
Síðan þá hefur það lítið breyst þó að litirnir (gulu&rauðu) hafa fengið að víkja til að einfalda það fyrir framleiðslur á ýmsum varning og í fyrra var “Poker Club” tekið út af heimasíðunni og merkingum svona ef ske kynni að menn gerðu einhverntíman eitthvað meira en bara spila póker 😉
Undirritaður hefur sérstaklega gaman að hafa útlínurnar á fjallinu “eina” þarna í bakgrunni alltaf þegar maður horfir á spilapeningana, heimasíðuna, húfuna, bolina, bjórkönnuna…
Lesa meira5 dagar í bústað – Pókerinn…
…bindur (Seyðfirðinga) saman…alltaf gaman að rifja upp gamla tíma, hérna er mynd úr greininni sem kom í Séð og Heyrt 2011…skemmtilegt að minnast þess að við vorum ekki 15 ára félagar að spila póker eins og ljósmyndarinn hélt 😉
Menn hafa nú sumir fullorðnast síðan þetta var og fleiri nick komin á menn heldur en voru í gangi þarna 😉
Lesa meira6 dagar í bústað – “High-low split” póker á föstudagskvöldið
Það verður tekið í spil að vanda á föstudeginum og nú verður spilað “High-low split” þar sem að hæðsta og lægast hönd vinna hvern pott. Þannig að það eru alltaf tvær hendur sem vinna hvern pott.
Ef það eru fleiri en einn með bestu/vestu höndina skiptist sá helmingur í fleiri helminga , eftir því hversu margir voru jafnir.
Við munum prófa þetta með okkar dæmigerðri uppsetningu á Texas Holdem no limit, þannig að það gætu orðið margar jafnar hendur þegar margir eru að spila og 5 sameiginleg spil í borði.
Engar frekari breytingar eru nema að tveir pottar eru í boði: hæðast/besta hönd og lægasta/versta hönd.
Spilað verður þar til 2 eru eftir og munu þeir skipta verðlunum á milli sín.
Ekki er gert ráð fyrir að menn borgi sig inn heldur verður bústaðapotturinn notaður til að leggja nokkra þúsundkalla í púkkið sem verðlaun.
Lesa meira7 dagar í bústað – Verðum við millar í ár?
Það er útlit fyrir að nokkrir þúsundkallar verði afgangs. Þannig að þegar við ljúkum við innkaup á föstudaginn (eftir viku) á leiðinni í bústað þá stoppum við í sjoppu og kaupum okkur nokkrar tölur í EuroJackpot og sjáum hvort heppnin verður með okkur þetta árið…
P.s. Massinn og Heimsi ætla að hafa yfirumsjón með matnum 😉
Lesa meira8 dagar í bústað – Konungar við borðið
Það er skylda að rifja þetta upp á hverju ári…það eru mörg góð myndbönd á síðunni okkar (og líka meira á video síðunni) en þetta er klárlega eitt af þeim betri þegar “the Bjolfur” var þemað í bústaðnum fyrir 2 árum og við skelltum í texta yfir einn Cash-ara slagara sem hefur oftar en ekki verið í bakgrunni hjá okkur:

❤️😘