Staðan í bjórnum?

7-2 keppnin er æsispennandi. Eftir 8 kvöld eru stigin orðin 18 sem er með hærra móti (ef covid/rafrænu árin eru tekin út fyrir þar sem þau skiluðu mun fleiri bjórstigum því spilað var mun hraðar 😉
Staðan er nú:
🥇 3 stig – Kapteinninn, Lucky og Mikkalingurinn – Þeir standa efst, en staðan er brothætt eins og fínt vínglas í hendi á pöddufullum drykkjumanni.
🥈 2 stig – Bensi, Hr. Huginn, Bótarinn og Iðnaðarmaðurinn – Eru með örlögin í sínum höndum, næsta sigur og þeir blanda sér í toppbaráttuna og endum við kannski með fleiri en þrjá bjórguði í lok tímabils?
🥉 1 stig – Timbrið – Engin minskunn hjá honum og minnir á að ein góð kvöldstund getur breytt öllu!
Og bara spurning hvað gerist í bústaðnum, munu efstu menn halda? Verða þrír bjórguðir eða munu einhverjir úr neðri lögunum rísa upp úr froðunni? Allt verður ljóst eftir fyrstu fjórar lotuurnar í bústaðnum?

Hversu lengi eru bjórstig í boði?
Fyrstu fjóarar umferðirnar og þar sem við spilum lengri lotur í bústaðnum þá er það fyrstu 3 tímana sem menn geta landað bjórstigum. En gott að muna að bjórstigin eiga bara að vera í boði þegar hvítir spilapeningar eru enn á borðinu (sem eiga að vera teknir út eftir 4 umferð).
❤️😘