🎒Hverju á að pakka fyrir bústaðinn?

Bústaðabrak og pokerlykt er í loftinu! Næsta holl er á leið í fyrirpartýið í dag og sameinast þar Massanum og Heimsa sem löngu eru komnir í gírinn.
Nú er rétti tíminn til að henda sér í pakklistann og tryggja að ekkert mikilvægt gleymist í borginni.
📦 Skyldudótið – þessu MÁTTU EKKI gleyma:
✅ Reiðufé – því bankinn tekur ekki blöff
✅ Drykki – veigar til að styrkja taugar og móral og minningar
✅ Bjólfshúfan – tákn sjálfsvirðingar og heiðurs
✅ Bjólfsbolur – annað er bara disrespect 😉
✅ Bjólfskannan – vertu ekki sá sem stelur glasi af öðrum
✅ Bjólfshandklæði – vertu ekki sá sem þurrkar sér í handklæði annara
🎒 Fínn lúxus – ef þú vilt búa eins og kóngur:
✅ Rúmföt / svefnpoki – skemmtielgra að þurfa ekki að liggja í líkamsvessum allra sem áður sváfu þarna
✅ Sundföt & snyrtidót – kannski endar einhver í pottnum 😉
✅ Aukafatnaður – ef þú svitnar af spennu eða missir bjór á þig
Góða ferð, félagar – og munið að pakklistinn er eina „pre-flop” sem allir ættu að vinna!
Við sjáumst í bjálkahöllinni… og við spilaborðið. 🃏🔥🍻
❤️😘