Bók mánaðarins
Sælir félagar,
Ég ákvað að henda inn bókum mánaðarins.
Read and learn
Caro’s Book of Poker Tells (Mike Caro)
Lesa meiraLomminn kvaddur,
Póker er spennandi dægradvöl þar sem leikendur geta slakað á, skemmt sér og notið vinalegrar samkeppni. Enginn annar leikur býður upp á sambærilega vitsmunalega örvun, tækifæri á að læra, og jafn góðan félagskap eins og póker gerir.
Þolinmæði, tölfræðivitund, kænska, sálfræði, ákvarðanataka og agi eru aðeins brot af þeirri lífsnauðsynlegu hæfni sem pókerspilari þróar með sér. En þrátt fyrir allt skemmtanagildið og gagnlegu eiginleika pókersins er einn ógeðfelldur þáttur, sem oft á tíðum skilur leikendur eftir í sárum, órjúfanlegur frá þessum annars fallega leik———“Bad Beats!”
“Bad Beasts” er þegar þú ferð inn með stóra summu, mjög góða hönd í farteskinu og nánast fullkomnar líkur á sigri. En á einhvern ótrúlegan hátt hittir mótspilari þinn, á síðustu stundu, á þetta eina draumaspil sem hann vantar til þess að sigra þig. Þessi órjúfanlegi þáttur pókersins er án vafa sá mest pirrandi. Þar sem póker er leikur hæfileika og útsjónasemi finnst spilurum “Bad Beats” oft á tíðum óviðeigandi og ósanngjarnir og valda þeim andvöku svo dögum skiptir.
Einn meðliður okkar frábæra félagsskaps kann manna best að taka slíkum uppákomum. Sá aðili er sá hinn sami og ég vil kveðja með þessum stutta pistli. Hann lætur sjaldan reiðina og gremjuna hafa áhrif á sig, heldur tekur þessu með æðruleysi og heldur áfram með sinn leik eins og ekkert hafi í skorist. Að rjúka upp í bræði, berja í borðið og kasta spilapeningum er eitthvað sem Lomminn getur ekki verið sakaður um.
Um leið og ég þakka Lommanum fyrir uppbyggingu Bjólfs, sem hann á mestan heiður af, vil ég þakka honum fyrir ómælda vinnu sem hann hefur lagt til klúbbsins. Ég er fullviss um að Lomminn muni rífa upp pókersamfélagið fyrir austan og koma því upp á næsta plan—,,Bjólfsplanið”. Þín verður sárt saknað og erfitt verður fyrir nýjan aðila að fylla í skó þína.
Að lokum bið ég ykkur bræður mína vel að lifa. Sjáumst í haust, endurnærðir og sólbrúnir eftir sumarið.
Timbrið hefur talað.
Lesa meira
❤️😘