Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Bók mánaðarins

Skrifað af þann 20. Sep 2011 in Bók mánaðarins | 1 ummæli

Að þessu sinni er bók mánaðarins ekki bók heldur samansafn ráða frá atvinnuspilurum í Halifax. Samtals er hér að finna 80 handhæg ráð sem gott er að hafa í vopnabúrinu þegar okkar eigin Halifax meistari virðist ósigrandi…

Ráðin eru ekki öll ætluð Texas Holdem en þá er bara að hoppa yfir þau sem þið teljið að muni ekki koma að gagni.

Lesið, njótið og lærið

Fáðu ráð frá Halifax (2Mb) Lesa meira

Pókerárið 2011-2012 farið af stað

Skrifað af þann 10. Sep 2011 in Mót | 14 athugasemdir

Þá er biðin langa á enda og ekki laust við að það hafi verið smá spennufall að móti loknu. Að vanda var mótið og hittingurinn gríðarlega skemmtilegur þar sem mörg spennuþrungin augnablik litu dagsins ljós þar á meðal tveir 72 sigrar og ótrúleg riverspil. Mótið var óvenju langt og tel ég að það stafi helst af því hve lengi menn reyna að hanga inni til að ná í sem flest stig og er það bara hið besta mál.

Lesa meira

Áminning

Skrifað af þann 3. Sep 2011 in Mót | 5 athugasemdir

Ég minni spilara á skráningaskylduna. Það þarf að skrá sig í mót fyrir kl. 24 fyrir mótsdag (fimmtudag) til að fá engin refsistig. Ef skráningu er breytt (eða spilarar gera upphaflegu skráningu) innan við þrem tímum fyrir mót verða veitt 3 refsistig.

Skráningareglur má skoða hér.

Lesa meira

Bók mánaðarins

Skrifað af þann 31. Aug 2011 in Bók mánaðarins | 4 athugasemdir

Sumri halla tekur og haustið nálgast með splunkunýjum mótaröðum, nýjum sigurvegurum og nýjum bolum en það er alltaf sama eftirvæntingin, sama gleðin og sama svekkelsið á lélegri spilamennsku og sama vissan um að gera betur næst sem heillar.

Það er ekki seinna vænna en að hefja undirbúninginn með bók mánaðarins en hún er eftir engan annan en meistara Doyle Brunson. Bókin heitir Super system – a course in power poker. Ég læt ósoðin meðmæli fylgja með á frummálinu:

This is a classic book on every major no-limit game played today and is considered by many pros to be the best book ever written on poker! Jam-packed with advanced strategies, theories, tactics and money-making techniques – no serious poker player can afford to be without this essential book!

Lesa meira

Uppgjör pókerársins 2010-2011

Skrifað af þann 23. May 2011 in Blog | 2 athugasemdir

Þá er frábæru pókerári lokið og enn á ný hefst biðin eftir næsta ári. Með jafnri og góðri spilamennsku og með dash af heppni hreppti Logi Helgu titilinn Bjólfsmeistarinn 2011 og óskar Pókerklúbburinn Bjólfur honum til hamingju með það. Hann fékk Föroya bjórsafn að launum að ógleymdri sérmerktri Bjólfsmeistaraderhúfu frá Merkt.is sem verður afhent í næsta mánuði ásamt bolunum og 72 bjórum.

Lesa meira
  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…