Næsta mót
Af gefnu tilefni bið ég meðlimi að skrá sig sem fyrst í næsta mót. Eins mega þeir sem geta haldið mótið láta vita í commentum.
Bjólfsmeistari
Þá er það ákveðið. Það verður gerð Bjólfshúfa handa Bjólfsmeistaranum 2011. Til að finna meistarann verður einfaldlega lögð saman öll stig sem meðlimur hefur hlotið yfir pókerárið. Eins og gefur að skilja verður efsta sætinu ekki deilt milli manna og verður tekið heads up (eða milli allra jafnra) ef menn verða jafnir. Tekið verður úr sameiginlega sjóðnum fyrir húfunni og verður hún afhent eftir tímabilið með nafni meistarans. Ég set hönnun meistahúfunnar í hendur yfirhönnuðs klúbbsins, Loga Helgu.
Þið getið smellt á töfluna til stækka hana. Töfluna er einnig að finna undir mót
Lesa meiraPáskamót
Könnunin um heimasíðuna hefur runnið sitt skeið á enda. Hún var meira gerð í gamni en alvöru og þar sem ekki voru margir neikvæðir möguleikar komu niðurstöður vel út 😉
Skipulagning er hafin að Páskamóti Bjólfs á Seyðisfirði 2011. Unnið er að því að hafa samband við viðkomandi aðila og hönnun vinningshúfunnar fyrir Seyðisfjarðarmeistann 2011. Meira um málið síðar.
Lesa meiraNý könnun
Þrátt fyrir slæmt veður og ófærð undanfarið náðum við 50% kjörsókn í skoðanak0nnuninni okkar og vildu allir kjósendur hækka árgjaldið. Flest atkvæði fékk hækkun upp í 3.000 kr. eða 5 talsins. Þar með verður árgjaldið 3.000 kr. og greiðist við upphaf næsta tímabils (sept. 2011).
Ný könnun hefur litið dagsins ljós og nú er kannað viðhorf til nýju síðunnar. A.T.H. – HÆGT ER AÐ VELJA FLEIRI EN EITT SVAR.
Lesa meiraUpphafið að endinum
Þá er síðasta mótaröðin farin af stað með nýjum tækifærum, nýrri spennu, sláandi atvikum, nýjum vonbrigðum og nýrri von.
Ákveðið var að setja tvist sjöu reglu í þessari mótaröð. Hún virkar þannig að sá sem hefur unnið oftast á 2♠7♠ (sama hvaða sort) þegar mótaröðinni líkur fær kippu af 500ml bjór frá öllum meðlimum.
Það fer að vera hálf leiðinlegt að tilkynna Bósa sem sigurvegara auk þess sem hann tók þússarann fyrir að slá iðnaðarmanninn út en aldrei þessu vant spilaði ég eins og maður og náði öðru sætinu (hlýtur að vera aldurinn). Einhverjum datt í hug að fara í cash game eftir mótið en sökum ölvunar var erfitt að fylgjast með hver vann hvað. Allir keyptu sig inn fyrir 1.000 kr. og ég hafði unnið nokkra potta en samt tókst mér að tapa 2.500 kr????
Ég vil þakka mér fyrir að halda mótið og bjóða meðlimum upp á þesu líka fínu súpu, Massanum fyrir nautsrassinn sem fór í súpuna, Iðnaðarmanninum fyrir snakkið, Timbrinu fyrir sektina (kökurnar), Loga Helgu fyrir myndatökuna og að lokum ykkur öllum fyrir afmælisgjöfina.
Þússari á Bósa í næsta móti.
Lesa meira
❤️😘