Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Gjafir komnar í framleiðslu

Skrifað af þann 21. Apr 2015 in Bústaður, Fréttir | Engar athugasemdir

Framleiðsla er hafin á gjöfum fyrir bústaðinn 2015 og í tilefni af 5 ára afmælinu fer aðeins meira í þennan lið miðað við fyrri ár, en það er allt í góðu þ.s. árgjaldið var hækkað til að standa undir svona hugmyndum og útlit fyrir að við bókhaldið verði réttu megin við núllið 😉

Gaman að rifja upp hvað hefur verið gefið undanfarin ár:

  • 2011 (Flúðir) – ýmis smáverðlaun & viðurkenningar
  • 2012 (fyrir utan Laugavatn?) – Bjórkönnurnar & derhúfunrar
  • 2013 (Apavatn) – bolir (hvítu sérmerktu með kraganum)
  • 2014 (Apavatn) – The Bjolfur bolir + gúmmíarmbönd + útskorið Logo klúbbsins (aukagjöf í boði Iðnaðarmannsins)
  • 2015 (Apavatn) – ???
Lesa meira

Bílar í bústaðinn

Skrifað af þann 20. Apr 2015 in Búnaður | 3 athugasemdir

Það mun þurfa nokkra bíla til að koma okkru í bústaðinn og spurning með að ferja Lommaborðið líka. Iðnaðarmaðurinn getur jafnvel reddað STÓRUM poka til að setja utan um það…en það er búið að vera í öryggri geymslu síðan í síðasta bústað hjá Heimsa í Hveragerði og heldur betur kominn tími á að draga það fram aftur og setjast við það =)

Þeir sem ætlar að vera á bílum látið endilega vita þannig að við hinir getum deilt okkur í bíla með ykkur.

Mig vantar far þar sem eini bíllinn á heimilinu verður að vera til afnota fyrir hina 5 sem ég skil eftir heima.

Lesa meira

Útdeilding $ í bústaðnum

Skrifað af þann 20. Apr 2015 in Bústaður | Engar athugasemdir

Í ár fá allir meðlimir þúsara (úr bústaðapottinum) til að gefa einhverjum öðrum (ekki sjálfum sér).

Gefa þarf upp einhverja ástæðu fyrir af hverju annar félagi á að fá þúsarann…og verða þær athugasemdir notaðar við afhendingu á “góssi” í bústaðnum í ár.

Meðlimir hafa þegar fengið sendar upplýsingar hvernig á að skila sínu “atkvæði” og eru flestir búnir að kjósa…unnið verður úr þessu og allt kemur í ljós eftir örfáa daga í bústaðnum 😉

Lesa meira

#bjolfur

Skrifað af þann 19. Apr 2015 in Fréttir | Engar athugasemdir

Ef þið viljið setja inn myndir sem birast hægra megin hérna á síðunni þá þarf aðeins að merkja instagram myndir með #bjolfur og þá koma þær sjálfkrafa hérna inn 😉

Lesa meira

Einvígísmót á föstudeginum í bústaðnum

Skrifað af þann 19. Apr 2015 in Bústaður, Fréttir | Engar athugasemdir

Í bústaðnum í ár verður spilað einvígismót á föstudeginum. Fyrirkomulagið verður þannig að allir leikmeinn fá þúsundkall úr bústaðapottinum og leggja hann undir í einvígi við andstæðinginn.

Lesa meira
  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…