Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Baráttan um skjöldinn, lokapottinn og bjórinn…

Skrifað af þann 14. Apr 2014 in Blog | Engar athugasemdir

Bótarinn er farinn að máta skjöldinn og augljóst að hann ræður vel við hann. Það er þó á brattann að sækja eftir að hafa farið snemma út á síðasta móti og Lucky Luke náði auka 6 stigum í forystunni. Þannig að það eru 12 stig sem Bótarinn þarf að ná að vinna upp…sem er fræðilegur möguleiki ef að fleir en 13 mæta í bústaðinn…vonandi sjá sem flestir sér fært á að mæta til að gefa Bótaranum von í ár.

En baráttan um lokapottinn í síðustu mótaröðinni er í fullum gangi og margir sem eru að berjast um 2. og 3. sætið og hlut af síðasta potti tímabilsins…svo ekki séð talað um bjórstigin sem hafa látið á sér sitja en þeim hefur nú ringt inn áður í bústaðnum og aldrei að vita hvað gerist eftir nokkrar vikur…nú eru 9 stig í húsi en í fyrra enduðu þau í 13, þannig að það gætu nokkrar flöskur bæst við í lokamótinu og breytt stöðunni 😉

Síðan er auðvitað verið að spila um pott kvöldsins í bústaðnum, þannig að það er nóg spenna og til margs að vinna =)

Nánar um stöðuna.

Lesa meira

Félgar á Catalínu

Skrifað af þann 14. Apr 2014 in Blog | Engar athugasemdir

Þeir voru hressir þessir félagar sem héldu uppi stuðinu í Kópavoginum eftir að spili lauk og sáu til þess að Catalína var enn meira lifandi.


Myndir: Ásinn

Lesa meira

Bóndinn stöðvaði Lucky

Skrifað af þann 13. Apr 2014 in Blog, Mót | 1 ummæli

hja_bosa


Það voru tíu Bjólfsmenn sem hittust í vel upplýstri stofunni hjá Bósa. Það var þétt setið við Lommaborðið og góður fílingur á mönnum eins og alltaf.
Rólegt var í spilinu framan af lítið af endurinnkaupum fyrr en fór að nálgast lokun.

Lesa meira

Föstudagskvöld hjá Bósa

Skrifað af þann 7. Apr 2014 in Blog, Mót | 2 athugasemdir

Síðasta kvöldið fyrir bústað er á föstudaginn og það er enginn annar en Bósi sem býður heim. Skráningin er hafin og verður fróðlegt að sjá hvort við sláum mætingarmet en 11 hafa mest mætt á mót á þessu tímabili.

Lesa meira

Auka OPEN mót?

Skrifað af þann 25. Mar 2014 in Fréttir | 8 athugasemdir

Einhver umræða var um að vera með auka OPEN mót á Ljóninu.

Það eru 5 vikur á milli síðustu móta…en föstudagarnir þar 25. marsapríl og 2. maí eru báðir með frídag á fimmtudeginum…þannig að kannski er hægt að taka miðvikudagsmót með frí á fimmtudeginum ef næg þáttaka er…komið með athugasemdir/óskir/tillögur í komment.

Lesa meira
  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…