Runner runner
Undir lok síðasta árs kom út myndin Runner, runner sem mætti flokka sem pókermynd þar sem sögusviðið snýr að glamúrlífi netpókers.
Það er nú reyndar mest lítið af póker í henni og meira dramaspenna um háar fjárhæðir, svip & pretti.
Aðalsögupersónan er ungur upprennandi nemi sem borgar námið með að vísa mönnum á pókersíður eftir að hafa farið illa út úr bankakreppnunni og misst af góðri vinnu og fullt af peningum. Hann kemst að svikum í netpóker og kemst inní æðsta hring þeirra sem þar stjórna…en ekki er allt sem sýnist.
Enginn stórmynd, en fínasta ræma þegar ekkert annað er í boði…og menn vilja hita smá upp fyrir stóru kvöldin okkar þegar að peningarnir bókstaflega flæða 😉
Dæmigerður Logi
Önnur mótaröðin kláraðist hjá Gestgjafanum í gær. Það var sem áður vel veitt og Gestgjafanafnbótin farin að festast við hann…enda ávallt greifi að sækja heim (þó hann hafi nú ekki staðið sig nógu vel á heimavellinum og verið með yfirlýsingar að heimavöllurinn væri ekki að gera sig lengur…ég held að hann þurfi að fara að blása rykið af “blinginu” 😉
Hver tekur ★ á föstudaginn?
Síðasta mótið í annari mótaröðinni kárast á föstudaginn hjá Gestgjafanum. Killerinn er efstur í 2. mótaröðinni en Bótarinn er er á siglingu og er aðeins einu stigi á eftir ásamt Hobbitanu, Robocop og Pusa…þannig að það verður svakaleg barátta um aðra ★-una á tímabilinu.
Skráningin er hafin og ef menn ætla ekki að fá refsistig er eins gott að skrá sig fyrir miðnætti á fimmtudaginn.
Sjáumst á föstudaginn =)
Lesa meiraBók mánaðarins: Poker Plays You Can Use
Hér á ferðinni skemmtileg framsetning á mismunandi leikstílum og hvernig er hægt að spila á móti þeim. Bókin er sett upp á skemmtielgan hátt og geta menn glöggvað sig á hvernig mismunandi spilastílar geta gagnast á móti öðrum. Nafnið á bókinni er því mjög lýsandi um það hvað er verið að fjalla um. Ábyggilega einhverjir sem geta þekkt stíla hjá öðrum Bjólfsmönnum og fundið út einhverjar góðar leiðir til að taka á mönnum eftir 3 vikur og á komandi kvöldum 😉 Bókin er aðgengileg á bókasíðunni og lykilorðið þar inn er viðurnefnið á stofnandanum (allt í lástöfum 😉
Fresh Deck Poker
Fyrir þá sem eiga Apple snjallgræjur (iPhone eða iPad, jafnvel iPod touch) þá mæli ég með Fresh Deck Poker sem er fínasta pókerforrit til að grípa í.
Lesa meira
❤️😘