35 afmælispóker 9Q
Jæja félagar, ég býð til afmælismóts föstudaginn 13. desember. Þetta er off-season mót þannig að það eru engin stig til Bjólfsmeistara og menn geta því tekið á því.
Lesa meiraLomminn strikes again
Robocop bauð heim og komin smá tími síðan við hittumst þar síðast. Skemmtilegt þegar ljósmyndarinn bankaði uppá í leið að smástrákum að spila póker 😉
Gott að spila hjá Robo og þó hann hafi nú reyndar misst af hluta kvöldsins þá var það jafnvel ágætis strategía sem aðrir voru farnir að skeggræða að prófa.
Óuppgerð mál
Allt er að smella fyrir annað kvöld en þó eiga 5 eftir að melda sig: Massinn, Heimir, Kári, Gummi & Ásinn og hafa menn til miðnættis.
Og það eru aðrir 5 sem eiga eftir að borga árgjaldið: Kári, Gummi, Ásinn, Timbrið & Robocop og er alltaf tími til að klára þetta.
Enn aðrir 5 eiga eftir að borga bjór”skuldirnar” sínar: Mikkalingurinn, Hobbitinn, Masssinn, Gummi & Heimir og tilvalið tækifæri annað kvöld fyrir þá sem mæta 😉
Lesa meiraGamlir félagar snúa aftur
Það verða smá fagnaðarfundir á föstudaginn þegar við hittumst hjá Robocop. Nú þegar hafa 2 meðlimir sem voru horfnir á braut snúið aftur og von er á öðrum 2 á næsta mót. Þannig að það verða endurfundir við gamla félaga og verður gaman að sjá hvort þeir hafa nokkru gleymt.
En annars er skráning í fullum gangi og verða menn að melda sig fyrir föstudaginn.
Síðan er Lommaborðið & taskan hjá Ásinum…hver reddar því? Er Ásinn að mæta og getur hann reddað þessu eða einhver annar?
Lesa meiraIðnaðarmaðurinn lætur ekkert stoppa sig

Það var tylft Bjólfsmanna sem hittist hjá Spaða Ásnum á lokakvöldi fyrstu mótaraðarinnar 2013-2014.
Ásinn veitti vel og fór vel um okkur á nýjum stað…þó svo að við hefðum þurft að hafa upphækkun fyrir annað borðið…en það var bara notaleg lágmenning þar á borði 😉

❤️😘