Bensi byrjar með látum
Tímabiliði byrjaði með góðu afmælismóti hjá Iðnaðarmanninum þar sem meðal annars var afmæliskaka á boðstólum.
Spilað var um 3.5 tíma, 21þ kall sem var í verðlaunafé. Spilað var á 2 borðum: Lokaborðinu og Massaborðinu sem var vígt og tók sig vel út eftir “uppfærslu”.
Leikar fóru þannig að Bensi kemur heldur betur sterkur inní klúbbinn og byrjar á því að landa sigri í fyrsta móti. Hobbitinn tók annað sætið og Massinn síðasta verðlaunasætið…allt menn sem gera sig líklega í vetur (svona ef að Hobbitanum tekst að haga fundum í bænum miðað við mót vegna fyrirhugaðra flutninga).
Killerinn var eini sem náði að landa bjórstigi þrátt fyrir góða tilraun hjá Ásnum í upphafi kvölds.
Frekari upplýsingar er hægt að sjá á stigatöflunni og ekki oft sem að Heimir er ofarlega á töflunni og gaman að sjá hann rúlla upp flestum.
Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…