Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Bjólfskviða

8 dagar í bústað – Konungar við borðið

Skrifað af þann 12. May 2016 in Húmor | Engar athugasemdir

Það er skylda að rifja þetta upp á hverju ári…það eru mörg góð

read more

9 dagar í bústað – Bolir í prentun og hvað fleira?

Skrifað af þann 11. May 2016 in Fréttir | 2 athugasemdir

Eins og síðustu ár fá menn nýjan Bjólfsbol við setningu lokamóts á laugardaginn. Bolir eru komnir í framleiðslu ásamt öðrum varningi en sú skemmtilega hefð hefur myndast að vera með gjafir í bústaðnum. Í fyrsta bústað voru það smærri gjafir en þegar við hækkuðum árgjaldið úr 3þ. í 10þ. var gert ráð fyrir að eiga fyrir framleiðslu á merktum vörum og held ég að allir séu sáttir hvað þeir fá fyrir árgjaldið: bústaður, þrif, bolur, varningur og síðan ómæld skemmtun þegar við hittumst. Ég er spenntur að sjá hvernig tekst til með gjafir í ár, það...

read more

10 dagar í bústað – Bjólfsmeistarinn 2016

Skrifað af þann 10. May 2016 in Fréttir, Tölfræði | Engar athugasemdir

Bjólfskeppnin 2016Create line charts Það er nokkuð ljóst að enginn mun ná Lucky í bústaðnum þ.s. hann er með 17 stiga forystu og áætlað að við verðum í mesta lagi 16 í bústaðnum. Lucky Luke mun því hampa titlinum í 4. skiptið og tekur við honum af Bótaranum sem átti svakalegt tímabil í fyrra þar sem hann sló hæðstu vinningshæð á tímabili þrátt fyrir að hafa aðeins mætt á 9 mót af 10. Þeir tveir eru þeir einu sem hafa hlotið nafnbótina og spurning hvort að aðrir Bjólfsmenn ætli ekki að fara að taka á honum stóra sínum og skáka þessum sitjandi...

read more

11 dagar í bústað – Bjór, bjórstig og bjóruppgjör

Skrifað af þann 9. May 2016 in Fréttir | 1 ummæli

11 dagar í bústað – Bjór, bjórstig og bjóruppgjör

Keppnin um Bjórmeistaran er enn harðari enn í fyrra…nú eru það þrír sem eru með þrjú stig (Lucky, Bótarinn og Timbrið). Því aðeins 2 klukkutímar eftir sem munu upplýsa hver mun taka bjórinn í ár. En það eru aðeins Bóndinn og Killerinn sem eru síðan með sitt hvort stigið og þurfa því 2 til að ná forystusauðunum. Spurning hvort einhverjir eiga eftir að leggja allt undir í voninni um að taka bjórinn þetta árið. Í fyrra voru það 2 sem voru í forystunni fyrir bústaðinn en enduðu þrír: Bósi, Bótarinn og Timbrið. Það hefur því verið erfitt að...

read more

12 dagar í bústað – Breytt ásynd

Skrifað af þann 8. May 2016 in Fréttir | Engar athugasemdir

12 dagar í bústað – Breytt ásynd

Gaman að rifja upp “gamla tíma” og skoða formannspistil frá febrúar 2011 þegar að Lomminn þakkar Robocop fyrir frumkvæðið að bústaðarferðunum og myndin á þessari frétt er einstaklega skemmtileg. Grænn dúkur á borðinu, ómerktir chippar og engir bolir eða húfur til…þetta var í “gamla daga” 😉 En annars er framleiðsla á varningnum (gjöfum) komin á fullt og áætlað að allt verði tilbúið fyrir bústaðinn. Eins og alltaf verður setningarathöfn á laugardaginn kl. 15:00 og síðan mun spil hefst um 16:00 og spilað í tvo tíma...

read more

13 dagar í bústað – Stemmari í ljósmyndatöku

Skrifað af þann 7. May 2016 in Fréttir | Engar athugasemdir

Það er alltaf stuð þegar Bjólfsmenn hittast og meira að segja þegar við erum að stilla okkur upp í ljósmyndatöku þá eru menn alltaf í gírnum:...

read more

14 dagar í bústað

Skrifað af þann 6. May 2016 in Fréttir | 1 ummæli

Jæja, þá er farið að styttast í árlegu ferðina…áætlað er að 16 Bjólfsmenn verði í bústað og 2ja verður sárt saknað…þó þeir muni jafnvel sakna okkar meira 😉 Matur Bósi er með kjötkaupin: nautalund fyrir laugardaginn og borgarar fyrir föstudaginn (þ.s. við vitum ekki enn hvort Bensi mætir og því gætu hreindýraborgararnir hans beðið betri tíma). Það er þá til 15 kall sem þarf að duga fyrir beikoni og öllu meðlæti…einhver bíllinn tekur þau innkaup að sér… Bílar Það er vitað að Bóndinn og Timbrið verða á bílum en á eftir að...

read more

Jón sigraði Jón

Skrifað af þann 30. Apr 2016 in Mót | Engar athugasemdir

Jón sigraði Jón

8 Bjólfsmenn mættu til leiks á síðasta heimamótið hjá Lukcy. Bjór Það var skemmtileg hönd þegar að Timbrið var með 7♥2♣ á hendi á móti Bótaranum með 7♠7♣ þegar að 7♦8♥4♥ komu í borð…allt leit út fyrir að þarna myndi ekki nást bjórstig þar sem sjöuþrennan var með þetta í hendi sér en 10♥ á turn og 2♥ á river gáfu Timbrinu litinn tryggðu honum eina bjórstig kvöldsins. Er hann því kominn með 3 stig eins og Lucky & Bótarinn og mikil spenna í Bjórkeppninni. Jón & Jón Eftir að menn duttu út einn af öðrum þá enduðu Jón og Jón tveir...

read more

Hádegishittingur

Skrifað af þann 25. Apr 2016 in Fréttir | Engar athugasemdir

Ég hitti Nágrannann um daginn í hádegismat og hann kom með frábæra hugmynd að við værum með hádegishitting. Þannig að það er komin skoðaðakönnun (hægra megin á síðunni) eða hérna fyrir neðan. Svarið hvað ykkur finnst svo hægt sé að ákveða framhaldið. [poll id=19]

read more

Síðasta heimamótið á tímailinu

Skrifað af þann 25. Apr 2016 in Fréttir | Engar athugasemdir

Síðasta heimamótið á tímailinu

Þá er komið að því að við tökum síðasta heimamótið áður en haldið verður í bústaðinn í maí. Núna á föstudaginn er þriðja mótið í þriðju mótaröðinni…29. apríl, spil hefst kl. 20:30 eins og alltaf. Að öllu óbreyttu verðum við aftur hjá Lucky nema að einhver bjóði fram húsnæði? Skráning er opin, meldið ykkur.

read more
  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…