Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Bjólfskviða

Dæmigerður Logi

Skrifað af þann 1. Feb 2014 in Blog, Mót | 3 athugasemdir

Dæmigerður Logi

Önnur mótaröðin kláraðist hjá Gestgjafanum í gær. Það var sem áður vel veitt og Gestgjafanafnbótin farin að festast við hann…enda ávallt greifi að sækja heim (þó hann hafi nú ekki staðið sig nógu vel á heimavellinum og verið með yfirlýsingar að heimavöllurinn væri ekki að gera sig lengur…ég held að hann þurfi að fara að blása rykið af “blinginu” 😉 Annars vorum við bara 8 í þetta skiptið. Eitthvað voru menn uppteknir og vantaði nokkra af efstu mönnum í mótaröðinni. Bjór & bjórstigGummi gosi gerði upp bjórinn með...

read more

Hver tekur ★ á föstudaginn?

Skrifað af þann 26. Jan 2014 in Blog | 12 athugasemdir

Hver tekur ★ á föstudaginn?

Síðasta mótið í annari mótaröðinni kárast á föstudaginn hjá Gestgjafanum.  Killerinn er efstur í 2. mótaröðinni en Bótarinn er er á siglingu og er aðeins einu stigi á eftir ásamt Hobbitanu, Robocop og Pusa…þannig að það verður svakaleg barátta um aðra ★-una á tímabilinu. Skráningin er hafin og ef menn ætla ekki að fá refsistig er eins gott að skrá sig fyrir miðnætti á fimmtudaginn. Sjáumst á föstudaginn =)

read more

Bók mánaðarins: Poker Plays You Can Use

Skrifað af þann 11. Jan 2014 in Bók mánaðarins | Engar athugasemdir

Hér á ferðinni skemmtileg framsetning á mismunandi leikstílum og hvernig er hægt að spila á móti þeim.  Bókin er sett upp á skemmtielgan hátt og geta menn glöggvað sig á hvernig mismunandi spilastílar geta gagnast á móti öðrum.  Nafnið á bókinni er því mjög lýsandi um það hvað er verið að fjalla um.  Ábyggilega einhverjir sem geta þekkt stíla hjá öðrum Bjólfsmönnum og fundið út einhverjar góðar leiðir til að taka á mönnum eftir 3 vikur og á komandi kvöldum 😉  Bókin er aðgengileg á bókasíðunni og lykilorðið þar inn er viðurnefnið á...

read more

Fresh Deck Poker

Skrifað af þann 11. Jan 2014 in App, Blog | Engar athugasemdir

Fresh Deck Poker

Fyrir þá sem eiga Apple snjallgræjur (iPhone eða iPad, jafnvel iPod touch) þá mæli ég með Fresh Deck Poker sem er fínasta pókerforrit til að grípa í. Það er þægilegt í notkun og mér finnst alltaf skemmtilegra að sitja við pókerborð þar sem er fólk fígúrur sem sitja á móti…svona þannig að maður fái tilfinnigu fyrir að þetta sé leikur með “vinum”. Síðan er ekki verra að grípa í einn leik daginn áður en maður mætir á mót svona til að vera búinn að koma sér aðeins í gírinn...

read more

Úrslit úr Bjólfur OPEN 2014

Skrifað af þann 4. Jan 2014 in Boðsmót, Mót | 3 athugasemdir

Úrslit úr Bjólfur OPEN 2014

18 spilarar settur niður á tvö full borð á Ljóninu í kvöld…byrjuðum aðeins seinna en áætlað var þar sem chipparnir voru seinir fyrir 😉 8 Bjólfsmenn á móti 10 gestum og ekki byrjaði vel þegar Ásinn & Logi voru fyrstir út. Einhverjir kættust nú yfir því að ég væri dottinn út og hófst þá mikil barátta að ná sem lengst á stigatöflunni en mótið telur til Bjólfsmeistarans 2014. Bótarinn & Timbrið voru á móti hvor öðrum og sá síðar nefndi með lægri stakk og Q♠10♦ á móti K♥K♦. Floppið breytti engu með 7♣5♦4♦ en Q♥ á turn breytti spilinu...

read more

Gestgjafar næstu móta

Skrifað af þann 4. Jan 2014 in Blog | 2 athugasemdir

Gestgjafar næstu móta

Það vantar gestgjafa fyrir næstu 4 mót fram að bústað: M2 – þriðja kvöld 31. January – Andri M3 – fyrsta kvöld 28. February – Gísli M3 – annað kvöld 21. March – Logi M3 – þriðja kvöld 11. April – Bósi Þið sem getið boðið heim endilega commentið og takið frá dagsetningu þannig að við erum klárir með staðsetningar sem fyrst 😉

read more

Jólamót Öldunnar 2013

Skrifað af þann 29. Dec 2013 in Austurland | 3 athugasemdir

Jólamót Öldunnar 2013

Hið árlega jólamót Öldunnar var haldið þann 28. desember síðastliðinn. Líklega vegna slæmrar færðar á Fjarðarheiði voru engir aðkomumenn í fyrsta skipti. Það breytti þó ekki þeirri staðreynd að afar fáir Seyðfirðingar hafa farið með sigur af hólmi í þessum mótum því að Norðmaðurinn Manni rafvirki, Jói hennar Lísu Marenar og Gunni hennar Stellu röðuðu sér í þrjú efstu sætin.   Gunni Gunn – 52.000 kr. Jói Jó – 32.000 kr. Manni Nonna Manna – 18.000 kr. Að þessu sinni voru tvenn aukaverðlaun en þau voru veitt þeim sem slógu...

read more

Bjólfur OPEN föstudaginn 3. janúar 2014

Skrifað af þann 28. Dec 2013 in Mót | 1 ummæli

Bjólfur OPEN föstudaginn 3. janúar 2014

Árlega opna mótið verður fyrsta föstudag á komandi ári. Bjólfsmenn hafa leyfi til að að bjóða gestum og endilega grípið góða félaga með og eigum saman góða kvöldstund. 1500 kr. buy-in gefur 15.000 chippa. Hægt er að kaupa sig aukalega tvisvar inn (re-buy) fyrsta klukkutímann, 1000 kr. sem gefa 15.000 chippa. Eftir fyrsta klukkutímann má kaupa 5000 chippa á 500 kall ef spilari er undir 10.000 chippum. Einnig má fylla uppí 15.000 chippa fyrir 1000 kr (svona ef einhver “lendir í því” að verða mjög lítill í hléinu 😉 Hittumst um 19:00...

read more

Með Hobbitanum á Hobbitann 2

Skrifað af þann 23. Dec 2013 in bíó, Blog | 5 athugasemdir

Með Hobbitanum á Hobbitann 2

Þó svo að Hobbitinn hafi verið fjarverandi síðast þá væntum nærveru hans þegar annar hlutinn verður sóttur í kvikmyndahús yfir hátíðirnar. Síðast vorum við þónokkrir sem mættum og nokkrir ungir fylgdarmenn með í för sem væntanlega mæta aftur. Massinn er kominn tillögur að tímasetningu: Föstud: 1630 / 1800? Laugard: 1430? Sunnud: 1430 / 1630 / 1800? Þeir sem ætla að mæta látið vita hvað hentar (eða hvað ekki).

read more

Jólakveðja 2013

Skrifað af þann 22. Dec 2013 in Blog | 3 athugasemdir

Jólakveðja 2013

SKÁL bræður! Fyrir okkur og enn einu tímabilinu sem um það bil hálfnað. Þetta er fljótt að líða og fyrr en varir verður komið að öðrum bústað…hér er niðurtalningin aftur svona þangað til að ég kem henni fyrir hérna hægra megin: [ujicountdown id=”Niðurtalning í lokamót” expire=”2014/05/17 12:00″ hide = “true”] Það sem er af tímabili hafa Eiki & Logi verið að berjast um toppsætið en staðan er æsispennandi þar sem aðeins eitt stig aðskilur þá og Killerinn er jafn Eika í örðu sæti. Síðan er stutt í...

read more
  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…