Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Bjólfskviða

Karma?

Skrifað af þann 3. Nov 2012 in Blog, Myndir | 2 athugasemdir

Karma?

Síðasta mótið í fyrstu mótaröðinni (nefnt Dauðamótið) var tekið hjá “Lucky Luke” og ég held að það sé alveg sannað að það ákveðin “heppni” sem fylgir honum/mér þó svo ég geti vissulega líka verið “óheppinn”… og dottið fyrstu manna út á lokamóti. Timbrið var í góðri stöðu fyrir mótið með 3ja stiga forskot. Logi var á eftir honum og sendi honum fljótlega tóninn með að taka hann út í upphafi kvölds eftir hálftíma spil. Nokkrir keyptu sig inn aftur og ekki leið á löngu eftir að ekki mátti kaupa sig inn að...

read more

Bjóruppgjör síðasta tímabils

Skrifað af þann 1. Nov 2012 in Blog | 1 ummæli

Bjóruppgjör síðasta tímabils

Það eiga nokkrir eftir að gera upp bjórinn frá síðasta tímabili. SÁÁ mætir þannig að það er upplagt tækifæri að ganga frá því. Uppgjörið er hluti af bókhaldinu og hægt að sjá það í flipanum “Innkoma 2012” neðarlega (fyrir ofan commentin) á bókhaldssíðunni.

read more

Dauðapóker á föstudaginn

Skrifað af þann 29. Oct 2012 in Blog | 3 athugasemdir

Dauðapóker á föstudaginn

Þá er komið að fyrstu stjörninni, fyrstu úthlutun úr lokapottin og enn einu góðu kvöldi þar sem félagarnir setjast yfir pókerborðið. Þetta mót er á Degi hinna dauðu og því vel við hæfi að kalla þetta Dauðamótið en það munu einhverjir detta dauðir frá lokapottinum ef þeir ná ekki að rúlla upp mótinu. Timbrið leiðir enn keppnina og Logi náði einu stigi á hann með sigri síðast en það eru fyrstu 3 sætin sem gefa hlut í lokapottinum þannig að flesir eru ekki bara að keppa um pott kvöldsins heldur geta menn náð í skerf af lokapottinum með að ná í...

read more

7 góð ráð fyrir hið fullkomna pókerfeis

Skrifað af þann 12. Oct 2012 in Blog | Engar athugasemdir

7 góð ráð fyrir hið fullkomna pókerfeis

Hér er skemmtileg grein um að setja upp gott pókerfeis sem einhverjir gætu lært eitthvað af…ég væri til í að sjá menn senda inn myndir ef þeir fara að æfa sig fyrir framan spegilinn eins og mælt er með í 7. punkti 😉

read more

Heppni eða ekki?

Skrifað af þann 7. Oct 2012 in Blog, Myndir | 9 athugasemdir

Heppni eða ekki?

Mikill spenningur var í loftinu fyrir 2. kvöldið í fyrstu mótinu þegar menn fór að streyma í Casino Massinn einn af öðrum og Timbrið mætti með nýja rétti (& gamla góða) úr vinnunni sem var sérstaklega skemmtilegt og lífgaði uppá stemmninguna…þó svo að jalapenjo hafa orsakað full mikinn viðrekstur undir lok spils hjá sumum 😉 12 meðlimir mættu og langt síðan hefur verið spilað á 2 borðum en auk þess mættu nýliðarnir 2 og fengu húfur í tilefni þess að vera komnir í klúbbinn og verður gaman að sjá hvernig þeir eiga eftir að standa sig. Rólegt...

read more

Bók mánaðarins

Skrifað af þann 4. Oct 2012 in Bók mánaðarins | 1 ummæli

Sælir félagar, Ég ákvað að henda inn bókum mánaðarins. Read and learn poker_math Caro’s Book of Poker Tells (Mike Caro)

read more

Kennaramótið 5. október

Skrifað af þann 30. Sep 2012 in Blog | 16 athugasemdir

Kennaramótið 5. október

Það styttist í kvöld #2 í fyrstu mótaröðinni. Timbrið leiðir stigakeppnina eftir fyrsta kvöldið en allt er opin í mótinu og væntanlega verður mætingin góð því margir eru stigalausir eftir fyrsta kvöld. Tvö kvöld eftir fyrir fyrstu ★ ársins og jafnframt lokapottinn í fyrstu mótaröðinni. Mótið lendir á kennaradeginum og spurning hver ætlar að taka menn í kennslu og hver ætlar að bjóða heim? Skráningin er opin og látið vita ef þið getið boðið heim.

read more

1000+ comment

Skrifað af þann 30. Sep 2012 in Blog | Engar athugasemdir

1000+ comment

Það fór lítið fyrir því þegar að 1000 athugasemdin á síðunni var sett inn. Síðan er búin að vera í loftinu síðan í júlí 2010 sem gerir um 800 daga þannig að athugasemdir eru fleiri en ein á dag sem við verðum að telja nokkuð gott og sjáum hvernær við náum athugasemd nr. 2000. Iðnaðarmaðurinn átti heiðurinn af #1000 og var hún stutt og góð. Spenntur Þúsundasta athugasemdin á heimasíðunni (Iðnaðarmaðurinn september 2012) Alltaf gaman þegar menn taka þátt í umræðunni hér og hvet ég meðlimi til þess að segja hvað sem þeim dettur í...

read more

1000 góðar póker aðferðir

Skrifað af þann 22. Sep 2012 in Bók mánaðarins | Engar athugasemdir

1000 góðar póker aðferðir

Bók mánaðarins hefur ekki verið birt lengi og nú er það 1000 best poker strategies sem er samansafn af góðum ábendingum um póker. Menn geta gluggan í þá kafla sem menn hafa áhuga. 2. kafli fjallar um No-limit texas holdem og 9 kafli um að lesa leikmenn. Síðan er áhugaverður kafli nr. 10 um heimaleiki þar sem við höfum nú þegar útfært margt en góður punktur nr. 849 If you want to take your poker club one step further, you can offer satellites for major tournaments. Elect a president and the most important officer of your club, the treasurer....

read more

Breyting á móti

Skrifað af þann 22. Sep 2012 in Blog | 4 athugasemdir

Breyting á móti

Sælir félagar, ég ætla að óska eftir að fá að gera breytingu á fyrsta kvöldi í mótaröð 2 sem er fyrirhugað 30. nóvember. Ef enginn gerir athugasemdir ætla ég að færa það aftur um eina helgi á 7. desember. Þar sem ég er með afmæli um svipað leiti ætlaði ég að gera aðeins meira úr mótinu með að bjóða heim í mat fyrir mót. Allir sáttir?

read more
  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…