Bjólfskviða
Húsnæði reddað
Ég er búinn að bóka Rauða Ljónið fyrir okkur á morgun kl. 20:00. Ég held að það sé fínt að miða við að mótið byrji 20:30 og þeir sem vilja fá sé að borða á undan gera það. Hvar er taskan og hver kemur með hana?
read moreAukamót
Um síðustu helgi leið mér eins leikmanni í fótboltaliði sem er meiddur eða í banni og þarf að sitja uppi í stúku og fylgjast með félögum sínum spila. Því er ég búinn að kaupa flugmiða til að koma að hitta ykkur og grípa í spil. Þar sem frænka Binnu er að leigja íbúðina okkar kann ég ekki við að reka hana út til að bjóða ykkur heim 😉 En ég óska hér með eftir aukamóti næstkomandi föstudag (21.sept).
read moreTímabilið er hafið
Hörðustu meðlimir mættu í sund og tóku svo kvöldmáltíð fyrir spil. Það var afskaplega vel til fundið að hittast áður og ná smá spjalli og væri gaman að reyna að koma því í meiri hefð. En það voru einungis 7 við borðið á fyrsta móti…allir í bolun nema Timbrið sem mætti með rollon og nýja sokka eftir strangan dag í nýrri vinnu. Pusi byrjaði vel og var að hitta á allt og náði strax yfirhöndinni. Margir keyptu sig aftur inn og endaði það að 9 re-buy voru gerð, enda býður þetta fyrirkomulega uppá það sem er bara hið besta mál 😉 Síðasta spil fyrir...
read moreFyrsta mót tímabilsins
3 dagar í að tímabilið hefst. Planið er að hittast í heitum potti í Salalauginni og grípa svo borgara á Fridays áður en haldið verður til Iðnaðarmannsins. Gróft tímaplan er: 18:00 – Sund 19:00 – Matur 20:30 – Póker En þá er spurning hverjir ætla að mæta í hvað? Svarið í commentum og þeir sem eru ekki búnir að skrá sig klárið það.
read moreBjóruppgjörið
Það er staðfest að SÁÁ mætir á fyrsta mót og menn eru því hvattir til að mæta með kippuna sem þeir skulda honum til að gera það upp. En Pusi gekk vasklega fram á síðasta tímabili að halda þessum sigri eftir að hafa deilt honum fyrsta tímabilið. Það voru gerðar hetjulegar tilraunir til að ná honum á síðasta lokamóti sem kostuðu ýmsa mikið og aðrir náði ekki að jafna hann og verður gaman að sjá hvernig
read moreTímabilið 2012-2013
Hér er smá yfirlit yfir komandi tímabil sem hefst eftir viku, alltaf gott að rifja helstu atriðin upp fyrir tímabilið svo allt sé á hreinu 😉
read moreNýliðar
Þá hafa nýjir menn fengið blessun hinna heldri og munu 2 nýjir verða innlimaðir í félagsskapinn fyrir komandi tímabil: Kári “Killer” Kolbeinsson Kára þekkjum við flestir enda er hann ’80 módel frá Seyðisfirði. Hann hefur metnað og vill ganga í klúbbinn til að “rústa öllum öðrum í póker” og gæti orðið gaman að sjá hvernig það gengur hjá honum þar sem uppáhalds höndin hans er sjöa & tvistur sem við þekkjum sem bjórhöndina (þannig að það er spurning hvað SÁÁ finnst um að fá mögulega harða keppni í 72 slagnum 😉...
read moreHelstu siðprýðismistök pókerspilara
Þegar sest er aftur við pókerborðið eftir sumarfrí er alltaf gott að rifja upp hver eru helstu mistök þegar kemur að því að halda siðprúðu hátterni við pókerborðið. Þó svo að flestir séum við siðprúðir spilarar & heiðarlegir (sumir meira en aðrir) þá er hér 12 atriða listi yfir helstu mistök sem er skemmtilegt að renna yfir. Bendi svo sérstaklega nýjum meðlimum (og heldri) að glöggva sig á Siðareglunum okkar svona áður en við byrjum nýtt tímabil.
read moreHitað upp fyrir tímabilið
Það er misjafn hvernig menn undirbúa sig fyrir komandi tímabil en Massinn er klárlega að gera sig tilbúinn þessa dagana. Eftir að hann rétt misst af meistaratitlinum 2011 byrjaði hann 2012 tímabilið af krafti með að taka fyrsta kvöldið en eftir það fór að halla undir fæti og endaði illa. Eftir að hafa fengið nafnbótina “Afturfarir ársins” er ljóst að hann ætlar sér stóra hluti því sést hefur til hans á ýmsum casínóum um heim. Ekki nóg með að hann hafi verið að spila með einhverjum stórlöxum á erlendri grundu heldur hefur hann...
read more
❤️😘