Bjólfskviða
Sterk bönd
Blekið í Moggagreininni er rétt svo þornað þegar klúbburinn fær heilsíðu umfjöllun í Séð og heyrt. Það er ekki nóg með að umsóknum í klúbbinn rignir inn heldur vilja allir lesa um og sjá myndir af starfsemi hans og býst ég fastlega við símtali innan tíðar frá Skjá einum þar sem verður óskað eftir að gera raunveruleikaseríu um Bjólfsmenn. Það er erfitt að vera frægur á Íslandi og vonandi náið þið að gera jólainnkaupin óáreittir…barnanna vegna 😉
read moreÍslandsmeistari í póker
Mig langaði að benda ykkur amatörunum á að ég sló þennan dreng út einu sinni á Gullöldinni og fékk pening fyrir þar sem það var bounty á honum.
read moreSkoðanakönnun
Eftir gríðarlega harða keppni í síðust skoðanakönnun er orðið ljóst að við látum merkja bjórkönnur fyrir meðlimi. Nú veltir formaður BJólfs fyrir sér hvort eigi að láta merkja húfu fyrir Bjólfur OPEN mótið.
read moreBjólfur OPEN
Bjólfur á bókaðan pókersalinn á Rauða ljóninu Eiðistorgi fyrir næsta mót, föstudaginn 2. desember. Eins og í fyrra verður mótið opið fyrir vini og vandamenn meðlima og gott væri að skrá þá um leið og meðlimir skrá sig eða í það minnsta láta mig vita með öðrum hætti hversu mörgum þeir ætla að bjóða. Við hittumst kl. 19:núllnúll í pizzu og bjór og til að stilla saman strengi en mótið byrjar kl. 20:núllnúll Mótafyrirkomulag verður nánast óbreytt en bætt hefur við loturnar og rebuy hækkað í 1.500 kr. Þá hefur þússarinn verið færður yfir á næsta...
read moreM1 lokið
Þá er stórskemmtilegri mótaröð lokið þar sem Eiki Bót, son of Bjössi í Bót, sigraði með jafnri og þéttri spilamennsku. Sem fyrr er þéttur pakki á toppnum og munar aðeins 3 stigum á fjórum efstu spilurunum – sjá stöðuna í heild. Lokamótið í M1 bauð upp á skemmtileg “twist” með heimsókn ljósmyndara Séð og heyrt og ekki síst comebacki Bósa “clean-boy” Steinarssyni sem hefur nú ráðið sig hjá ISS. Ungi maðurinn í klúbbnum hafði orð á því að Bósi hafi komið til baka og gert lítið annað en að rífa kjaft en ég vill meina...
read moreFyrstu mótaröðinni líkur eftir viku
Næsta föstudag munu úrslit í M1 liggja fyrir. Staðan er nokkuð jöfn á toppnum og getur nánast hvað sem er gerst…3 neðstu eiga reyndar ekki möguleika á því að taka fyrsta sætið en allir aðrir geta tekið þetta fyrir utan Mikkalinginn sem verður vant við látinn. Þannig að það verður barist um pott kvöldsins auk lokapottsins og auðvitað eru allir að safna stigum í Bjólfsmeistarann 2012 og hafa því allir eitthvað að berjast um og ætti að verða góð keppni að vanda. Skráningin er farin af stað og allir passa uppá að skrá mætingu á réttum...
read moreGóð ráð við kjaftbrúk mótspilara
Í Pókerklúbbnum Bjólfi er ekki spilað upp á háar fjárhæðir. Heiðurinn, stoltið og sigur á félögunum er oft það sem skiptir mestu máli, að ógleymdri meistarahúfunni. En hvort sem spilað er upp á peninga eða stolt þarf alltaf einhver að tapa þegar annar sigrar. Menn bregðast misjafnlega við tapi og stundum eiga meðlimir til að… munnhöggvast eða jafnvel fleygja einhverju lauslegu. Þá getur verið nytsamlegt að hafa gott vopnabúr af ráðum til að róa taugarnar nú eða kasta sniðugu andsvari á þann pirraða 😉 Nokkur góð róð til að bæta...
read moreKlúbbur á barmi heimsfrægðar!
Eins og sumir ykkar tóku eftir var Pókerklúbbnum Bjólfi gerð nokkuð góð skil í mánudagsblaði Moggans þann 17. október síðastliðinn. Greinin er tilkomin vegna hliðarsíðu Formannsins og Bjólfsmeistarans 2011 sem þeir voru að koma á framfæri. Það kom á óvart hvað greinin fékk mikið pláss í blaðinu með mynd á forsíðu og ca. 2/3 af blaðsíðu inni í blaðinu. Áður langt um líður getum við ekki tekið niður derhúfurnar og sólgleraugun þegar við göngum frá pókerborðinu án þess að verða fyrir áreiti æstra aðdáenda… Greinin í...
read moreBók mánaðarins
Fyrir 7 mánuðum hófst liðurinn Bók mánaðarins með bók Dan Harringtons, Harrington on Hold´em Volume I. Nú er komið að Volume II: The Endgame. Á meðan Volume I fjallaði um fyrri stig móta er þessi meira um seinni hlutann og hvernig spilaháttur breytist þegar spilarar hafa stærri stafla og blindir eru hærri. Lesa má umfjöllum um volume II í heild sinni hér Ná í bókina...
read more
❤️😘