Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Bjólfskviða

M2 lokið

Skrifað af þann 4. Feb 2012 in Mót, Myndir | 5 athugasemdir

M2 lokið

Þá er annarri mótaröð á þessu pókerári lokið. Það var Mikkalingurinn sem sigraði þessa mótaröð en Logi var sigurvegari kvöldsins og jafnaði þar með Mikkalinginn í keppninni um Bjólfsmeistarann 2012 auk þess að landa einum 7-2 sigri og sækir hart að Pusa í þeim leik (ekki alveg á það bætandi að mínu mati). Hægt er að kynna sér stöðuna á þar til gerðri síðu ef menn hafa einhvern áhuga á því. Hvað mig persónulega varðar var þetta versta pókerkvöld sem ég hef átt og var þar um að kenna helvítis cash game-inu eftir mótið…en líklega mest...

read more

Mót á föstudaginn

Skrifað af þann 31. Jan 2012 in Mót | 10 athugasemdir

Mót á föstudaginn

Ég áttaði mig allt í einu á því að það er mót á föstudaginn. Þetta kom alveg aftan að mér og nú gefst mér ekki tími til að setja saman stradegiu og gameplan. Auk þess á eftir að finna mótshaldara fyrir þetta mót. Ég ætla að halda næsta mót en er einhver sem býður sig fram fyrir föstudaginn?

read more

Bók mánaðarins

Skrifað af þann 17. Jan 2012 in Bók mánaðarins | 3 athugasemdir

Bók mánaðarins

Það þýðir ekkert að bjóða upp á einhvern aukvisa í upphafi ársins 2012. Það er harðjaxlinn Roy Rounder með bók sína No Limit Hold´em Secrets 😉 Ef nafn höfandarins eitt og sér hefur ekki vakið áhuga ykkur nú þegar, læt ég fylgja nokkur orð úr “formálanum” eða “Read this first” eins og Rounder kallar það. Ná í bókina

read more

Heimsóknir í desember

Skrifað af þann 14. Jan 2012 in Blog | 1 ummæli

Þið voruð að velta fyrir ykkur hve margir kæmu inn á síðuna okkar. Hér er yfirlitsmynd frá 1. des. – 3. jan.

read more

Nýtt fyrirkomulag í næstu mótaröð

Skrifað af þann 14. Jan 2012 in Blog, Mót | 2 athugasemdir

Nýtt fyrirkomulag í næstu mótaröð

Það verður örlítið breytt fyrirkomulag í næstu mótaröð (M3). Það er eitt mót eftir í þessari mótaröð (M2) og því tekur þetta fyrirkomulag ekki gildi fyrr en eftir næsta mót. Fyrirkomulagið ER skjalfest á síðunni og því gott og gilt fyrir næstu mótaröð 😉 Þetta er afbrigði sem við spiluðum í afmælismótinu hans Loga með örlítið lagfærðum upphæðum. Nú kaupa allir sig inn fyrir hámarksupphæð og ráða hvenær þeir taka hluta af staflanum sínum.

read more

Friday the 13th

Skrifað af þann 14. Jan 2012 in Mót, Myndir | 4 athugasemdir

Friday the 13th

Það var gríðargóð mæting á síðasta mót og vantaði aðeins Bóndann þar sem hann var upptekinn við að bjarga efnahag þjóðarinnar úti á ballarhafi. Við vorum því þrettán meðlimir á föstudaginn þrettánda og spiluðum þar með á tveimur borðum. Það voru ekki allir óheppnir á þessu móti þrátt fyrir dagsetninguna tók Bósi nokkra heppnispotta sem skiluðu honum í 2. sætið 😉 Það var smá “incident” þegar Mikkalingurinn sneri við þremur spilum, Hobbitinn var allur inn og Bósi hafði sett lítilræði í pottinn. Ég vill meina að það eigi að vera hægt...

read more

Fyrsta mót ársins á föstudaginn

Skrifað af þann 10. Jan 2012 in Mót | 4 athugasemdir

Fyrsta mót ársins á föstudaginn

Eftir fjölskyldufrestun er komið að fyrsta móti almanaksársins föstudaginn 13. Að þessu sinni býður Massinn okkur í sinn rómaða skúr á nýjan leik og heyrst hefur að vegna ófærðar í sumarbústaðinn er Heimir að hugsa um að heiðra okkur með nærveru sinni. Það þarf að taka þann dreng ærlega í gegn og lesa honum pistilinn þar sem hann hefur ekki enn greitt árgjaldið né mætt á eitt einasta mót á þessu pókerári. Iðnaðarmaðurinn er búinn að skrá sig í mótið og lofar betrun í mætingu með betri forgangsröðun. Skráningar eru farnar að detta inn og...

read more

Bjólfur styrkir Útvarp Seyðisfjörð

Skrifað af þann 8. Jan 2012 in Austurland | 1 ummæli

Bjólfur styrkir Útvarp Seyðisfjörð

Á jólamótinu 2011, Bjólfur OPEN, gaf Pókerklúbburinn Bjólfur 500 kr. af hverju þátttökugjaldi mótsspilara og söfnuðust 17.000 kr. sem runnu til Útvarps Seyðisfjarðar. Formaður Bjólfs kom færandi hendi á gamlársdag upp í útvarpshús Seyðfirðinga og tók þakklátur Örvar Jóhannsson við peningagjöfinni. Með mótinu og styrknum vill Bjólfur leggja menningar- og félagslífi Seyðfirðinga lið. Góðar stundir

read more

ÚRSLIT – Bjólfur OPEN 2011

Skrifað af þann 31. Dec 2011 in Boðsmót, Mót | Engar athugasemdir

ÚRSLIT – Bjólfur OPEN 2011

Alls tóku 36 spilarar þátt í Bjólfur OPEN á Öldunni þetta árið og var góð stemning á mönnum en í ár tók engin kvennmaður þátt, sem fyrr var haft á orði að þær þyrftu að vera til staðar til að gefa og bauð einn bæjarbúi sína snót til verksins á næsta ári. Adólf Guðmundsson var sá eftirsótti (bounty) og stóð sig með stakri prýði þrátt fyrir örlitla hnökra en þetta rifjaðist upp fyrir honum eftir sem leið á mótið. Manna tókst þó á endanum að slá Adda út og hreppti fyrir það 10 KÍLÓ af fiski. Allir spilarar styrktu Útvarp Seyðisfjörð með þátttöku...

read more

Jólakveðja Bjólfs

Skrifað af þann 24. Dec 2011 in Blog | 1 ummæli

Jólakveðja Bjólfs

Pókerklúbburinn bJÓLfur óskar öllum meðlimum og fjölskyldum þeirra gleðilegrar hátíðar og þakkar fyrir samveruna á árinu. Konur og kærestur fá sérstakar þakkir fyrir skilning og umburðarlindi auk þess þökkum við gestum fyrir þátttökuna. Eins og undanfarin ár kveður klúbburinn árið með jólamóti á Seyðisfirði en það væri gaman að halda hefðbundið Bjólfsmót í okkar heimabæ einn daginn.

read more
  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…