Bjólfskviða
Fyrstu mótaröðinni líkur eftir viku
Næsta föstudag munu úrslit í M1 liggja fyrir. Staðan er nokkuð jöfn á toppnum og getur nánast hvað sem er gerst…3 neðstu eiga reyndar ekki möguleika á því að taka fyrsta sætið en allir aðrir geta tekið þetta fyrir utan Mikkalinginn sem verður vant við látinn. Þannig að það verður barist um pott kvöldsins auk lokapottsins og auðvitað eru allir að safna stigum í Bjólfsmeistarann 2012 og hafa því allir eitthvað að berjast um og ætti að verða góð keppni að vanda. Skráningin er farin af stað og allir passa uppá að skrá mætingu á réttum...
read moreGóð ráð við kjaftbrúk mótspilara
Í Pókerklúbbnum Bjólfi er ekki spilað upp á háar fjárhæðir. Heiðurinn, stoltið og sigur á félögunum er oft það sem skiptir mestu máli, að ógleymdri meistarahúfunni. En hvort sem spilað er upp á peninga eða stolt þarf alltaf einhver að tapa þegar annar sigrar. Menn bregðast misjafnlega við tapi og stundum eiga meðlimir til að… munnhöggvast eða jafnvel fleygja einhverju lauslegu. Þá getur verið nytsamlegt að hafa gott vopnabúr af ráðum til að róa taugarnar nú eða kasta sniðugu andsvari á þann pirraða 😉 Nokkur góð róð til að bæta...
read moreKlúbbur á barmi heimsfrægðar!
Eins og sumir ykkar tóku eftir var Pókerklúbbnum Bjólfi gerð nokkuð góð skil í mánudagsblaði Moggans þann 17. október síðastliðinn. Greinin er tilkomin vegna hliðarsíðu Formannsins og Bjólfsmeistarans 2011 sem þeir voru að koma á framfæri. Það kom á óvart hvað greinin fékk mikið pláss í blaðinu með mynd á forsíðu og ca. 2/3 af blaðsíðu inni í blaðinu. Áður langt um líður getum við ekki tekið niður derhúfurnar og sólgleraugun þegar við göngum frá pókerborðinu án þess að verða fyrir áreiti æstra aðdáenda… Greinin í...
read moreBók mánaðarins
Fyrir 7 mánuðum hófst liðurinn Bók mánaðarins með bók Dan Harringtons, Harrington on Hold´em Volume I. Nú er komið að Volume II: The Endgame. Á meðan Volume I fjallaði um fyrri stig móta er þessi meira um seinni hlutann og hvernig spilaháttur breytist þegar spilarar hafa stærri stafla og blindir eru hærri. Lesa má umfjöllum um volume II í heild sinni hér Ná í bókina...
read moreBest poker face ever!
Eftir beinskeittar og líflegar umræður telur Formaðurinn nauðsynlegt að létta mönnum lundina með skondinni auglýsingu 😉 P.S. Ég hef fækkað lotunum í 7♠2♥ leiknum úr 6 í 4 lotur.
read morePrinsessupóker
Lokamótið í þessari mótaröð verður spennandi þar sem einungis munar 3 stigum á fjórum efstu sætunum og eru í raun mun fleiri sem geta hreppt M1 pottinn. Það verður að segjast eins og er að síðasta mót var frekar laust við spennuþrungin augnablik og fóru menn ekki í mikið ferðalag á tilfinningaskalanum, fyrir utan reiðina sem kraumaði innan í Robocop á tímabili, enda vantaði dramadrottninguna Andra “The Ace” ;-). Mótið byrjaði vel þegar Eiki vann pott fljótlega í mótinu með 7♠2♥ þar sem hann hitti á tvistaþrennu og náði þar sínu...
read moreLíður að móti…
Senn líður að öðru móti í fyrstu mótaröðinni og eru skráningar farnar að detta inn. Ný og betrumbætt síða yfir stöðuna hefur litið dagsins ljós og er einnig hægt að fylgjast með stöðunni í öllum hliðarkeppnum á hægri spássíu á öllum undirsíðum. Mig langar að beina athygli ykkar á að síðan Alltumpóker.com er hafsjór upplýsinga um póker og er þar m.a. að finna einkar sniðugan einblöðung með öllum því helsta sem vert að vita við borðið. Þá sem langar að bjóða heim til sín mega láta Formanninn vita í commentum, email eða...
read moreBók mánaðarins
Að þessu sinni er bók mánaðarins ekki bók heldur samansafn ráða frá atvinnuspilurum í Halifax. Samtals er hér að finna 80 handhæg ráð sem gott er að hafa í vopnabúrinu þegar okkar eigin Halifax meistari virðist ósigrandi… Ráðin eru ekki öll ætluð Texas Holdem en þá er bara að hoppa yfir þau sem þið teljið að muni ekki koma að gagni. Lesið, njótið og lærið Fáðu ráð frá Halifax...
read morePókerárið 2011-2012 farið af stað
Þá er biðin langa á enda og ekki laust við að það hafi verið smá spennufall að móti loknu. Að vanda var mótið og hittingurinn gríðarlega skemmtilegur þar sem mörg spennuþrungin augnablik litu dagsins ljós þar á meðal tveir 7♠2♥ sigrar og ótrúleg riverspil. Mótið var óvenju langt og tel ég að það stafi helst af því hve lengi menn reyna að hanga inni til að ná í sem flest stig og er það bara hið besta mál. Afmælisdrengurinn bauð upp á flottar veitingar að venju og þökkum við fyrir þær, móthaldið og sérstaklega Bylgju fyrir kökuna. Allir sem...
read more
❤️😘