Pages Navigation Menu

Pókerklúbbur

Bjólfskviða

Tímabilið hefst

Skrifað af þann 8. Sep 2011 in Blog | Engar athugasemdir

Tímabilið hefst

Ásinn (einnig þekktur sem Iðnaðarmaðurinn og einnig sem Stjórnmálafræðingurinn) býður heim á fyrsta mót tímabilsins. Vel til fundið þar sem við munum væntanlega spila fram yfir miðnætti og þá verður komið afmæli hjá gestgjafanum. Allir eiga að rata og er mæting kl. 20:30 í Turninn. Enginn má gleyma að mæta með uppgjör fyrir 7-2 regluna frá síðasta tímabili og er frjálst val á tegund en jafnframt verða menn dæmdir af því sem þeir mæta með…enda fara menn ekkert að bera einhverjar ómerkilegar veigar í sigurvegarana tvo sem tóku sitt hvorn...

read more

Áminning

Skrifað af þann 3. Sep 2011 in Mót | 5 athugasemdir

Áminning

Ég minni spilara á skráningaskylduna. Það þarf að skrá sig í mót fyrir kl. 24 fyrir mótsdag (fimmtudag) til að fá engin refsistig. Ef skráningu er breytt (eða spilarar gera upphaflegu skráningu) innan við þrem tímum fyrir mót verða veitt 3 refsistig. Skráningareglur má skoða hér.

read more

Bók mánaðarins

Skrifað af þann 31. Aug 2011 in Bók mánaðarins | 4 athugasemdir

Bók mánaðarins

Sumri halla tekur og haustið nálgast með splunkunýjum mótaröðum, nýjum sigurvegurum og nýjum bolum en það er alltaf sama eftirvæntingin, sama gleðin og sama svekkelsið á lélegri spilamennsku og sama vissan um að gera betur næst sem heillar. Það er ekki seinna vænna en að hefja undirbúninginn með bók mánaðarins en hún er eftir engan annan en meistara Doyle Brunson. Bókin heitir Super system – a course in power poker. Ég læt ósoðin meðmæli fylgja með á frummálinu: This is a classic book on every major no-limit game played today and is...

read more

Uppskerumót 2011

Skrifað af þann 13. Aug 2011 in Blog | 2 athugasemdir

Uppskerumót 2011

9 Bjólfsmenn hittust og tóku smá upphitun fyrir komandi leiktíð. Auk þess var bolum, meistarahúfunni og öðrum verðlaunum dreift, þannig að þetta var svona annað uppgjör á síðasta keppnistímabili. Bjólfsmeistarinn minnti á sig og tók mótið og var Massinn í öðru sæti og var hann vel að því kominn fyrir að hýsa okkur eins og oft áður.

read more

Uppgjör pókerársins 2010-2011

Skrifað af þann 23. May 2011 in Blog | 2 athugasemdir

Uppgjör pókerársins 2010-2011

Þá er frábæru pókerári lokið og enn á ný hefst biðin eftir næsta ári. Með jafnri og góðri spilamennsku og með dash af heppni hreppti Logi Helgu titilinn Bjólfsmeistarinn 2011 og óskar Pókerklúbburinn Bjólfur honum til hamingju með það. Hann fékk Föroya bjórsafn að launum að ógleymdri sérmerktri Bjólfsmeistaraderhúfu frá Merkt.is sem verður afhent í næsta mánuði ásamt bolunum og 72 bjórum. Með sigri á lokamótinu tókst Lommanum að tryggja sér sigur á tímabilinu og samkvæmt viðtali sem Bjólfur átti við formanninn neitaði hann ekki að nokkur...

read more

Bók mánaðarins

Skrifað af þann 12. May 2011 in Blog, Bók mánaðarins | Engar athugasemdir

Bók mánaðarins

Bók mánaðarins þennan mánuðinn er ekkert smá stykki. Hún lendir ansi oft á topp 10 listanum yfir bestu pókerbækur allra tíma og er talinn ein sú besta fyrir byrjendur. Ég er að tala um The Theory of Poker eftir David Sklansky sem er mikils metinn í pókerheiminum þó svo ekki fari mikið fyrir honum. Kíkið á þessa ef þið ætlið að eiga einhverja möguleiki í mig í bústaðnum.

read more

Pókerhelgin mikla

Skrifað af þann 10. May 2011 in Blog | 21 athugasemdir

Pókerhelgin mikla

Senn líður að löngum laugardegi á Flúðum. Ég finn fyrir mikilli spennu og tilhlökkun í mönnum enda ekki nema von þar sem um stórviðburð að ræða 😉 Við fáum úr því skorið hvort einhverjum takist hið ómögulega…að koma í veg fyrir að ég sigri tímabilið, hver sigrar í 7♠2♥ leiknum okkar, og að sjálfsögðu hver sigrar þetta extra langa mót og síðast en ekki síst hver verður Bjólfsmeistari. Eins og við höfum rætt verður lokamótið með töluvert breyttu sniði. Aðalbreytingin verður á lengd mótsins. Loturnar verða 45 mín. og 30 mín. og mótið í...

read more

M3 mót 3

Skrifað af þann 30. Apr 2011 in Mót | 12 athugasemdir

M3 mót 3

Það var notarleg og þægileg stemning hjá Loga þar sem við vorum búnir að koma okkur þægilega fyrir í stofunni hjá honum og þakka ég honum fyrir móthaldið og meðlætið. Það var eitthvað um það að meðlimir fengu refsistig fyrir vankanta á skráningu og var Bóndinn sá eini sem slapp við refsingu af þeim sem mættu ekki. Mótið gekk vel fyrir sig og fáar stórar uppákomur litu dagsins ljós þó menn hafi mátt þola slæma útreið stöku sinnum. Ég held þó að ekki hafi hallað á neinn hvað það varðar. Fram að þessu hafði enginn Iðnaðarmaðurinn einungis fengið...

read more

Seyðisfjarðarmeistarinn 2011

Skrifað af þann 20. Apr 2011 in Austurland | 1 ummæli

  Seyðisfjarðarmeistarinn 2011 – Nikolas Grabar Um 20 manns tóku þátt í Seyðisfjarðarmeistaranum í póker 2011 í afslappaðri og góðri stemningu á Öldunni. Einungis var um búsetta eða brottflutta Seyðfirðinga að ræða og voru veitt peningaverðlaun fyrir 5 efstu sætin. Ísleifur vann sér inn aukaverðlaun annað mótið í röð (á Seyðisfirði) með því að slá Jón Halldór út og fékk að launum bíómiða fyrir tvo. Gunnar Már Kidda Jóns sló Sonju Ólafs út og fékk fyrir það pizzuveislu fyrir tvo á Skaftfelli. Ég hef sjaldan eða aldrei tekið þátt í...

read more

Reglubreytingar

Skrifað af þann 15. Apr 2011 in Fréttir | 4 athugasemdir

Í ljósi uppákomu í kringum síðasta mót hafa verið gerðar nokkrar breytingar á reglum og refsingum. Hugmyndin mín var aldrei að vera einhver einvaldur í klúbbnum en þar sem langflestir meðlimir hafa ekki mikla skoðun á umgjörð hans ákveð ég reglur og refsingar eftir mínu höfði en þó m.t.t. skoðannakanna og umræðna. Þeir sem eru ósáttir geta mætt á mót hjá Pókerklúbbnum Strandatindi 😉 Reglan um lágmark 8 meðlimi verður afnumin. Dagsetningar standa. Þeir sem skrá sig eða breyta skráningu eftir miðnætti á fimmtudegi fyrir mót fá 1 refsistig Þeir...

read more
  1. Þetta er bara skandall...spurning hvort þetta verði Síðasta Pókerferðin? Kannski getur Timbrið sent einhvern í sinn stað eða sent nýkreistan…